Bestu Buffy þættirnir Þessi grein er undir áhrifum frá skoðanakönnuninni sem er í gangi núna. Ég sé að nokkrir þættir hafa verið valdir og fólk svo hvatt til að velja þann besta. Allt gott um það að segja. Nema hvað að ég sé að enginn hefur ennþá valið “Doppelgangland” sem er að mínu mati einn af hinum bestu - og betri en sumir aðrir sem koma fram í þessari skoðanakönnun. Synd.

Þannig að við bætum bara úr því hér. Nefnið fimm bestu Buffy þættina - að ykkar mati. Ykkur er velkomið að segja af hverju - eða bara koma með titla. Ef þið eigið í erfiðleikum með að muna nöfnin á þáttunum vil ég benda ykkur á þáttalýsingar á þessari síðu: http://oto.is/buffy/thaettir.htm (og ég sver að ég er ekki að þessu til þess eins að plögga mína síðu!)

Ég byrja þá - topp fimm:

Once more with feeling (6.07)
Restless (4.12)
The Wish (3.09)
The Body (5.16)
The Pack (1.06)

Og svo verð ég að nefna einnig Doppelgangland og Innocence.
——————