Þetta er varla spoiler, en samt :

.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.

Hafiði tekið eftir því hvað Xander er feitur í 6. seríu. Hann var orðinn frekar stæltur og svona, en ég get svarið það, maðurinn er búinn að fitna um einhver 20-30 kíló. Einnig er hann í svo víðum fötum að það væri örugglega hægt að búa til ágætis fallhlíf úr þeim. Þetta helst líka nokkurnveginn í hendur við það hve leiðinlegur hann hefur verið í seríunni, alltaf röflandi útaf öllu og ekkert skemmtilegur. Ætli herra Brendon sé í einhverju veseni sjálfur eða ætli það séu einhverjar aðrar skýringar á þessu? :P

Finnst konunum hérna þetta ekkert skrýtið? Hvað haldið þið t.d. að mundi gerast ef einhver af aðalleikkonunum í þáttunum myndi skyndilega fitna svona ógurlega mikið? Haldiði að fröken Carpenter eða ungfrú Caulfield myndu halda hlutverkum sínum ef þær myndu gera eitthvað í þessum dúr?

Nú er ég karlmaður og hef því nett gaman af því að horfa á ungfrú Gellar hoppa um í þröngum fötum, en ég er viss um að margar stelpur sem horfa á þessa þætti séu nú smá skotnar í honum Xander greyinu ( þessi venjulega, óörugga, fyndna týpa a la Chandler Bing). Hvað finnst ykkur?

Kveðja,

Binni