Þættirnir 6x18 og 6x19 - VARÚÐ Spoilerish!!!! Jæja loksins er allt að gerast í Sunnydale - ég er búin að vera að bíða eftir því að einhver skrifi eitthvað og commenti eitthvað á þessa tvo þætti en ekkert gerist! Það voru reyndar svo miklar umræður hérna áður en breakið kom í Buffy um að það væri of mikið spoiler talk hérna inni en ég held að það verði þá bara að skifta þessu áhugamáli niður í tvo flokka - einn fyrir stöð 2 og annað fyrir alla hina sem að fylgjast með þessu á netinu, mér finnst alla vega synd að maður verði að passa sig þvílíkt á öllu sem að maður sendir inn! Ég meina að það er erfitt að passa sig á öllu, myndum og könnunum og þess háttar, t.d. með brúðkaupið hjá Anya og Xander, þar kom mynd frá mér og síðan könnun, en könnunin átti ekki að komast strax inn - þannig að þetta var alveg óvart :( sorry!
Jæja annars langar mig bara að fá að chatta við aðra die-hard íslenska Buffy aðdáendur um allt sem að er að gerast í hinni brilliant 6. seríu núna!
Seeing Red 6x19, fannst mér vera alveg brill - það var alveg meiriháttar að sjá Töru og Willow saman, svaka happy! Eins fannst mér Xander og Buffy eiga góðan sprett saman. Ágætt að vera að sjá fyrir endann á aula-tríóinu, þó að maður hefði viljað sjá Warren í jailinu með hinum tveimur (hvað er málið með Buffy - af hverju er hún alltaf með einhverja hatta þegar hún er á patrol ;)!
Síðan er það málið með Spike blessaðann og alla umræðuna um illsku hans! Sko nauðgunaratriðið var náttúrulega ekki góð auglýsing fyrir þá sem að segja að Spike sé ekki alvondur - og ég er enn með þeim í liði. En samt minnti þetta atriði mig á það þegar að Buffy var að banka Spike alveg í klessu fyrir aftan löggustöðina - þá missti hún sig og þarna missti hann sig! Alla vega er spennandi að sá hvert að Joss og co ætla að fara með þetta allt saman. Annars var ég búin að lesa á netinu að Spike væri ekki bara í Afríku til þess að láta fjarlægja chip úr hausnum heldur líka til að fá svolítið annað - SPOILER - eins og Angel er með, er líka borg í Kóreu!!! :)
Jæja vona alla vega en einhver nenni að chatta um þetta allt saman - og afsakið hvað ég er búin að rambla mikið ;)
Kv. Spikesgirl