Angurvær - en samt líka stór spoiler fyrir 6x15 hummm…. þar kom að því - í “As you were” þættinum nr 15 í sjöttu seríunni *Spoiler*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
hætta Buffy og Spike saman….eða öllu heldur hættir hún með Spike! Hvað finnst ykkur um þetta allt saman? Mér finnst hann vera búinn að “sanna” sig fyrir þeim öllum fyrir löngu en samt sem áður fær hann stöðugt skítkast frá þeim. Angel var nógu góður fyrir hana en engum virðist detta það í hug að Spike gæti verið nógu góður fyrir hana. Ég meina, come on, það er ekki eins og hún gæti verið með einhverjum kalli sem að vinnur 9-5 vinnu og skilur það síðan fullkomlega að frúin þarf að fara út að kála vampýrum á næturnar.
Spike stóð við loforðið sitt um að gæta Dawn og það gerði hann þegar að Buffy var dáin og það var engin von fyrir hann að na í hana. Mér finnst það sýna það að uppáferðir er ekki það eina sem að kemst að í kollinum á honum, það var í raun og veru ekki fyrr en að Buffy fór að vera með honum að þetta snerist upp í eitthvað sem að er líkamlegt að mestu leyti.
Hvað finnst ykkur, er Spike ekki búinn að sanna sig að hann er alveg jafn verðugur Buffy eins og Angel var - ef ekki bara verðugari?

Kveðja
Spikesgirl