Buffy er bara lang best! Lesendur tímarits sjónvarpsstöðvarinnar Sky hafa valið vampírubanann Buffy bestu kvenhetju í kvikmyndum eða sjónvarpi. Var Buffy fyrir ofan Lara Croft og Ellen Ripley, söguhetju Ókindamyndanna, í valinu. Bandaríska leikkonan Sarah Michelle Gellar, 24 ára, leikur titilhlutverkið í sjónvarpsþáttunum sem njóta mikilla vinsælda víða um heim.

Í samtali við Sky sagði Gellar að það væri uppörvandi fyrir sig að hún þyrfti ekki að fara í brjóstastækkun til að njóta virðingar og vinsælda. “Ég lít þannig á að kynþokkinn felist í því að hafa sjálfstraust,” sagði Gellar. Þá segist hún ekki þurfa á vímuefnum að halda, hún drekki ekki áfengi, reyki ekki og noti ekki fíkniefni. Þá forðist hún steiktan mat og drekki ekki lengur kaffi.

Listinn yfir helstu kvenhetjur að mati lesenda Sky er eftirfarandi:

1. Buffy
2. Lara Croft
3. Ellen Ripley
4. Myrkraengillinn
5. Undrakonan
6. Xena Warrior Princess
7. Sarah Connor í Tortímandanum
8. Sydney Bristow
9. Emma Peel í Hefnendunum
10. Englar Charlies.

Já þetta er copy/paste, en allt sem maður segir er copy/paste og það er bara lélegt coverup að reyna að breyta hlutum til að henta öðrum!
Tekið af mbl.is
Just ask yourself: WWCD!