PB fyrsti þáttur af annari seríu- *Spoiler* Mér fannst þessi þáttur af Prison Break hin besta skemmtun, og er greinilegt að önnur serían er ekki eftir að verða verri en sú fyrsta. Þarna sjáum við tvö nýja leikara í þáttunum þá William Fichtner sem heitir í þáttunum Alexander Mahone ( Alríkislögreglumanninn) og Jeff Perry sem leikur Terrence Steadmen.

Mér finnst þessi þáttur koma mjög mikið á óvart þar má nefna að Dr. Tancredi er ekki dáinn og vaknar hún frá meðvitund og Veronica Donovan verður drepinn af “ The Company”. En núna verður Michael Scofield að leggja höfuðið í bleyti það verður nú afar erfitt að komast úr landi þar sem öll sjónvörp,útvörp og dagblöð eru að lýsa eftir þessum grimmilegu glæpamönnum og verður líka gaman að sjá þá félaga komast undan hinum afar klóka FBI lögreglumanni, Alexander Mahone sem var næstum því búinn að hafa hendur í hári á þeim félögum. Ekkert sást til Tweener og Haywire en vonandi fara þeir að birtast í þáttunum með komandi þáttum.

Forvitnilegt verður svo að sjá hvað verður um hann óheppna T-Bag fór hann til dýralæknis og krafðist þess að sauma hendina sína aftur á sig, sem John Abruzzi hjó af í 1.seríu. En í enda þáttarins var Scofield búinn að fela ýmsan fatnað í kirkjugarði til þess að að falla í hóp almennings en eins og ég sagði var FBA lögreglumaðurinn á hælunum á þeim svo þetta er eftir að verða svo spennandi að ég get varla beðið eftir næsta þætti.

Volex