Jæja það er mjög lítið hér af Footballers Wives þannig ég ætla að skella inn einni grein..;)
Það eru komnar út 3 seríur af þessum þáttum og búið að sýna þær allar á Stöð 2. 3 seríunni lauk bara í seinustu viku og þetta var geðveikt spennandi…
*Lucy strauk frá Bruno með hjálp Amber og tók Angelicu, dóttur sína með til Giles sem hún kynntist á netinu en komst að því seinna að hann var geðveikur eftir að hafa misst konu sína í bílslysi. Hann gifti sig og Lucy og fór með þær mægðurnar í bíl og ætlaði að drepa þau öll…
*Bruno varð geðveikt reiður eftir að Lucy og Angelica fóru og fór og leitaði að þeim með Conrads hjálp. Þeir fóru í vitlaust hús og það endaði með því að Bruno skaut Conrad því hann hélt að Conrad væri Giles…
*Shannon fékk verk fyrir brjóstið og fór á sjúkrahús eftir að það leið yfir hana á veitingastað með Bethany…
*Harley var úti að borða með Katie þegar þetta gerðist en það var víst eitthvað á milli þeirra…
*Jackie stóðst ekki mátið eftir að Seb var búinn að kúga hana á fullu þannig hún fór til Rogers sem var á fundi í Newcastle og sagði honum frá framhjáhaldinu við Seb. Roger varð bálreiður út í Seb og henti honum út en Seb hefndi sín svo, fór í fjölmiðla og sagði þeim að Roger tók myndir af Jackie og Seb þegar þau gerðu það…
*Noah fór í e-rn veginn homma gufubað þar sem voru fullt af köllum að kela. Hann ætlaði að fara að kela við einhvern kall sem var þarna þegar hann sá að við hliðina á sér var pabbi Bethany, verðandi tengdapabbi hans…
*Hazel hætti og Tanya kom aftur í þættina og tekur hugsanlega við af henni en Amber verður þá að sætta sig við það…
Ég ætla að bíða spennt eftir næstu seríu! :D
Takk fyrir mig og vona eftir góðum skoðunum :)