Jæja, ég var að enda að horfa á fyrstu seríu Angel á spólum og dauðlangar að horfa á númer tvö.
Ég var mjög ánægð með þessa þætti, þeir eru spennandi, fyndnir og almennt bara mjög skemmtilegir.
En hvað nú? Hvar get ég séð seríu tvö? Er einhver vídeóleiga í bænum sem er með hana? Vill einhver lána mér?
Ég ætlaði að segja meira. En því hefur bara verið stolið úr heilanum á mér og verð þessvegna bara að segja það seinna!
En A.M.K. þá er Angel frábær þáttur og mig vantar seríu tvö!
Just ask yourself: WWCD!