Hvernig væri að lífga aðeins upp á þetta áhugamál?

Ég sé á korkunum að það er mikill áhugi fyrir alls konar þáttum hérna. Hvað með að skrifa grein um einn af sínum uppáhaldsþáttum? Ekki hafa það bara upptalningu heldur velja eina þáttaröð og skrifa þannig að greinin hvetji fólk til að horfa á þættina.

Greinin um Desperate Housewives hvatti mig til að horfa á þá þætti og er ég búin með 10 þætti núna á tveimur vikum.

Þetta mega vera gamlir þættir sem hættir eru í framleiðsu eða nýjir sem aðeins eru komnir nokkri þættir af og allt þar inn á milli. Þættirnir þurfa ekki að vera sýndir í íslensku sjónvarpi.

Vonast eftir góðum viðtökum.

kv. Gunna 7fn

p.s. ég er að hugsa um að skrifa um Lost.