One Tree Hill Uppáhalds þátturinn minn er um fólk sem býr í Tree Hill

Það helsta:

Karen og fyrrverandi eiginmaður hennar Dan Scott. Þau eiga einn son sem heitir Lucas (Chad michael murray) og svo á Dan annan son með eiginkonu sinni Deb og hann heitir Nathan. Nathan á kærustu sem heitir Haylie (kann ekki að skrifa það) og hún er vinkona Lucas. Lucas átti kærustu sem heitir Brooke en hún sá hann kyssa bestu vinkonu sína Peyton svo þær urðu óvinkonur og Brooke hætti með Lucas. Lucas lenti í bílslysi þegar mamma hans átti að koma frá Ítalíu sama daginn. Keith frændi hans var að keyra bílinn. Lucas lenti í dái en náði sér en eitthvað er að öxlinni. Nathan og Lucas eru ekki góðir vinir en í sama körfubolta liði (Tree Hill High School team) Brooke og Peyton eru báðar klappstýrur en Brooke er fyrirliðinn. Nathan hatar foreldra sína núna og fékk sér lögmann sem útvegaði honum pappíra sem foreldrar hans þurftu að skrifa undir ef það er gert getur hann flutt frá þeim og það gerir hann.

Þetta er svona helsta og ég hvet ykkur endilega að horfa á þættina.

Á Skjáeinum Mánudaga: 20:00 endursýndir Föstudaga: 18:30 (eða 19:30)
Ýmislegt til sölu :) www.facebook.com/barnafot1