Cordelia Chase Cordelia Chase var fædd og alin upp í Sunnydale og er sígilt snobb. Hún er vinsæl klappstýra, ótrúlega sjálfselsk og segir alltaf það sem henni finnst. Þegar Buffy kom fyrst reyndi Cordelia að verða vinkona hennar því að allir frá Los Angelas hljóta að vera kúl. En hætti því þegar Buffy Réðst óvart á hana með priki og fór að hanga með nördum eins og Willow og Xander og fór henni að líka illa við hana. En að lokum þurfti hún auðvitað á Buffyar hjálp(þegar ósýnileg stelpa fór að hræða hana). Stuttu eftir að hún fann út að hún var bani fór hún alltaf að hanga með genginu meira og meira (þótt henni líkaði ekki beinlínis við þau) en stuttu eftir urðu þau Xander og Cordelia kærustupar. Þegar vinsælu vinir hennar föttuðu það hætti hún með honum en skipti síðan um skoðun og ákvað að vera með hverjum sem henni langaði til og að það skipti ekki máli hvað þeir voru aulalegir. En síðan kisstust Willow og Xander og þau voru í vandræðum með að gera það ekki aftur en svo sáu Cordelia og Oz til þeirra. Cordelia og Xander byrjuðu ekki aftur saman. Cordelia flutti til Los Angelas til að verða leikkona en það endaði ekki sem best.