Varúð mikið af nýlegum upplýsingum úr nýustu seríunum sem skemma fyrir ykkur söguþráðinn ef þið eruð að horfa á þættina í sjónvarpinu núna.




















Spjall
Göngum út frá því að Josh komi alltaf fyrir vísbendingum um framvindu söguþráðarins svona öðru hverju innan um urmul af fölskum vísbendingum.
Við könnumst jú flest við drauma Buffy um Dawn sem voru vísbendingar um komu hennar.
Hvaða “clue” höfum við séð hingað til, hér er vissulega úr nógu að taka.
Draumar Buffy ; fyrstan er að telja drauminn “slayer in training (SIL), from beneath you it devours” eða eins og 2/3 af the evil trio Jonathn og Andrew sögðu “it eats you starting with your bottom”. Þessi draumur er nokkuð augljós og flest hefur komið fram.
Þá er það draumur Buffy um, eða öllu heldur með mömmu sinni í Bring on the night, þar var samræða þeirra á milli, var reyndar ekki mjög merkileg, í lauslegri endursögn, Joyce segir Buffy að hún verði að hvíla sig og Buffy heldur að þetta sé The fyrst evil, ekki mikið kjöt á beinunum þarna.
Sennilega tengist þetta samtali Dawn við Joyce í Conversation whith dead people, þar segir Joyce : Things are coming Dawn, things are on there way, I love you and I love Buffy but she wil not be there for you, when it is bad Buffy will not choose you, she be against you
Ég hallast mjög að því að þarna séu einhverjar vísbendingar um framtíðina. Það er vissulega hægt að segja að ýmislegt hafi komið bæði illmenni og SIL, þannig að fyrri hlutinn er réttur og hví ekki seinni hlutinn. Hvern velur Buffy framyfir Dawn ? eða kannski hvað velur Buffy fram fyrir Dawn?
Ég hef nú í sjálfu sér ekki neinar lausnir á þessu en tel að það sé hægt að taka mark á þessu spjalli þeirra Joyce og Dawn, að þetta hafi raunverulega verið Joyce en ekki The fyrst evil. Ég held að þetta snúist ekki um að Buffy sé ekki tilbúinn að fórna sér fyrir Dawn við vitum að hún fórnaði lífinu fyrir hana og hótaði Giles að hún myndi velja Dawn fram yfir allt ( þ.e. endalok heimsins ). Hvað þá ? verður hún að á móti Dwan the Vampire Slayer eins og hefur verið gefið í skin. Ég hef ekki hugmynd en það væri gaman að sjá einhverjar tillögur frá ykkur.