(Það eru spoilerar en ég mun gefa góða viðvörun áður en þeir koma!)

Nýlega var send út tilkynning um að Charisma Carpenter (Cordelia Chase í Angel) væri loksins búin að giftast unnusta sínum og að hún á von á sínu fyrsta barni í mars. (heimild http:www.charisma-carpenter.com en vefurinn er búinn að liggja niðri í smá tíma) Samkvæmt fregnum er Charisma og eiginmaðurinn hennar í himnaríki en þetta hefur auðvitað orðið til þess að fjórða þáttaröðin mun taka aðra stefnu en hafði verið ákveðið.

SPOILERAR úr útkomnum þáttum fjórðu seríu héðan í frá…

*

*

*

*

*

Glöggir áhorfendur hafa kannski tekið eftir að hún er orðin pínsu búttuð auk þess sem hún sést eiginlega bara í andlits-nærmynd upp á síðkastið. Nærmyndirnar hafa verið til að tefja að fólk taki eftir því að hún sé ófrísk þangað til að þeir gátu skrifað þetta inní þættina. En núna lítur út fyrir að lausnin sé komin hjá þeim.

Connor?? Ég vona að fleiri voru fyrir vonbrigðum en bara ég! Ekki nóg með það að Cordelia sofi hjá Connor en nú lítur út fyrir að hún muni eignast barnið hans líka! Nema að það sé verið að reyna að plata okkur. En ég sé samt alveg fyrir mér hvað þetta gæti farið útí með Connor sem föðurinn og hef ég mínar tilgátur um þetta.

Þetta mun líka verða til þess að seinka því enn meir að Cordy og Angel nái saman. En ég held að þetta sé samband sem mun ekki verða að veruleika fyrr en hætta á að sýna þættina og kannski bara blessun að þeir séu að seinka þessu.

Annars leiðist mér að það skuli vera annar söguþráður með barn strax en það er bara óhjákvæmilegt! Ég er fyrir vonbrigðum með Cordy og ég vorkenni Angel en get samt ekki beðið eftir næsta þætti og að vita hvað gerist. En næsti þáttur er ekki sýndur í BNA fyrr en 8.janúar!!! Hryllilegt að láta okkur bíða svona!!