Eins og mjög margir hafa séð er verið að kvarta yfir sorpurum á /tilveran og ég tel þessar kvartanir eiga sér stað með réttu.

Mörg ykkar hafið verið að kvarta um afhverju svo margir hugarar þola ekki sorpið eða þá sem stunda það, og margir koma hingað inn með leiðindi og annað slíkt og þið verið alveg geðveikt pirruð og segjið þeim að halda sér frá þessu áhugamáli ef þeim líkar ekki við það og sleppa öllu dissi. En ég verð bara að segja að þið eruð að gera nákvæmlega það sama á tilveruni.

Áttið ykkur á því að tilveran er ekki sorpið, það er ekki sama fólkið og er ætlað allt öðrum hlutum en það sem kemur hingað inn, þið eruð að draga að ykkur leiðindi og riflildi og eruð að draga það hingað inn. Ég er ekki að skamma alla heldur aðeins þá sem vita uppá sig sökina.

Svo ég bið ykkur um að halda sorpinu hérna á /sorp og tilverist ATH ÁN SPAMMS á tilverunni. það er fólk sem kemur inn á tilveruna og ætlast til að lesa eitthvað tilveru stöff en í staðin fá þeir hálft sorp áhugamálið framan í sig. Ekki troða uppá fólk einhverju sem það hefur ekki áhuga á.

Sorpið á heima á sorpinu!
og virðið reglur annarra áhugamála.

Takk.