Jú góðir Sorparar nær og fjær! Komið að sérstöku kundunni þegar okkar ástkæru Lily2 og Laddis koma frá norðrinu í heimsókn til Reykjavíkur og eftir margar langar og strangar kunduplananir höfum við loksins komist að almennilegri niðurstöðu og jú! þetta var vesen takk fyrir. En á endanum ákváðum við að hafa þetta bara einfalt og skemmtilegt (Og plís ekki voga ykkur að segja að þetta sé dæmigert því þetta var endanlega niðurstaðan) en svo gæti hugurinn okkar fundið upp á sniðugum hlutum inn á milli (fyrir utan orgíu og allt það).

En jú, kunduplanið!
Við ætlum að hittast hjá Kringlunni næstkomandi laugardag 20. október um klukkan 18:15, bara hjá Stjörnutorginu (staðurinn þar sem við fáum okkur vanalega að borða fyrir þá sem hafa ekki farið sérlega oft í Kringluna) Flippast mikið og að sjálfsögðu fá okkur að borða og vera vitni að því er Laddis okkar kæri sorpari lætur ofan í sig sinn fyrsta Subway bát EVAH…Merkilegt að sjálfsögðu.
En eftir það ætlum við í bíó og erum með örfáar myndir í huga en ætli það sé ekki best bara að velja á staðnum segi ég!

Hvet sem langflesta að mæta og engar efasemdir!
Ég veit að þetta hljómar ansi OLD en við lentum í ýmsum vandræðum með skipulagningu og þetta dugar best thank you very much! :D

Tjáumst!

- Gexi Kexi


Mikið rétt! Þetta verður fkn awesome og ég vil að ALLIR MÆTI! Við munum skemmta okkur svo vel að það er ekki eðlilegt! Muna bara að mæta vel klædd með smá pening á milli handanna, og ekki gleyma góða skapinu! =D
I'm a winner, I'm a sinner. Do you want my autograph?