Frá framleiðundum síðustu samkundna þá kynnum við með stolti næstu samkundu. Mikið fjör, mikið nammi, mikið að borða, mikil ferðalög og mikið meira. Frumsýnt laugardaginn 29. júlí '06 kl. 15:00. Íííí kringlunni fyrir utan bónus því ónefndur Vansi var dálítið frumlegur í þetta sinn. ;)

Þeir sem þykjast ekki geta mætt verða eltir af Jóni draugi það sem eftir er af árinu! Án gríns. Þetta er alvaran fólk. En hann eltir ekki fólk með góðar afsakanir. Skila varlegu klappi til fólksins á Hítardal og Spánar.

P.s. Allir eru velkomnir! Og munið eftir peningi og strætómiðum. Og ef þið munið ekki hvar og hvenær þetta er lesið þá aftur kjánar.

P.s. x2, sá sem fattar hver skrifaði þetta fær ristað brauð.