Þið sem eruð búin að lesa þetta, athugið, breyting á plönum, að tillögu Worldwide (Leifs) Sunnudagur í staðinn fyrir laugardag.


Jæja, eftir síendurteknar fyrirspurnir til mín frá mörgum sorpurum: “búhúhú, hvenær er næsta samkunda” “veistu atli, það væri gaman að fara á samkundu bráðum” “GARG need my fkn samkunda!!!” hef ég ákveðið að taka völdin í eigin hendur, og ætla að prófa að sjá hvort ég geti verið með samkundu á sunnudaginn, 25. júní, klukkan 18:00. Eða, nálægt þeim tíma…

Ég veit að það er vanalega ekki ég sem á að skipuleggja þetta, en nú er neyð! Allaveganna virðist svo vera hjá sumum ykkar, grenjandi og vælandi í mér yfir þessu meðan ég held áfram að segja ykkur að tala við aðra, sem sjá um þetta að staðaldri.

Samkunda, 18:00 eða því sem næst (gæti verið smá seinn) á sunnudaginn næstkomandi 25. júní í Esso Ártúnshöfða. Borðum þar, förum svo kannski eitthvað út að gera stuff, eða gera ekki neitt, það verður bara ákveðið á staðnum. Muna eftir strætómiðum og pening, þetta kostar allt saman!

Ég vona að sem flestir geti mætt, að þetta verði ekki algjör disaster að láta aðra en Leif og Benna skipuleggja samkundu =P

E.s. Allir að skrá sig í ég ætla dæminu.

Koma svo, mæta! =}