Ég er hættur að samþykkja þessar pivot spýtukallamyndir, eða þ.e.a.s. þessar sem eru bara slagsmál og ekkert annað. Ef þetta er eitthvað fyndið stöff í gangi, þá gæti ég allt eins samþykkt það… En ekki senda inn þessa einföldu bardaga, þeir eru ekki samþykktir.
Einnig ætla ég að hætta að samþykkja myndir sem eru bara rugl, sem eru bara stigahór, sem og þær sem hafa komið oft oft áður…

Ef ykkur finnst myndin vera lengi að verða samþykkt hérna, þá er það því það eru margar myndir í bið. Ég vil að sem flestar myndir fái að njóta sín á forsíðu sorpsins, og því hef ég valið að gera þetta svona.
Ekki örvænta ef þið eruð ekki að fá svar snemma, þetta kemur allt saman, stundum þarf bara að bíða…

Þegar þið sendið inn myndir, þá er mjög æskilegt að hafa einhvern texta með, og helst þá eitthvað gott stuff, rétt skrifað og svoleiðis, sem kannski lýsir myndinni eða eitthvað þannig, skiljið þið?

Stigahór er ekki liðið hér, eins og ykkur er kunnugt um, þannig að ekki senda inn margar myndir í einu, nema það séu góðar myndir með góðum texta, annars mun ég í mesta æagi samþykkja eina á dag frá hverjum notanda…

Ég minni líka á könnunarstífluna sem geisar hér á sorpinu, engin könnun verður samþykkt, sama hversu góð hún er, alveg framundir enda aprílmánaðar, munið það.



Kveðja,
Vansi - sem hefur verið eini admin sorpsins alla helgina og líkar vel að vera einvaldur ^^