Eftir því sem sorparar verða fleiri verðum við líka ólíkari, það er eins og gengur og gerist. Þess vegna er það bara þannig að inn koma korkar sem aðeins ákveðinn hluti sorpara vill lesa. Ef sorpari lendir síðan í minnihluta og finnst bara gaman að lesa minna en helming, og bara mjög fáa, korka hérna þá byrjar þeim að leiðast hérna og hætta að lokum.

Ég ráðlegg fólki, ef því leiðist, að gera korka eftir sínu höfði. Þá getur það flippað á sinn hátt, en samt ekki missa ykkur í að gera 100 þræði á dag eða eitthvað álíka, segið kannski frá einhverju skemmtilegu atviki og spammið þráðinn svo til helvítis og til baka.

Hvernig væri það?

Allt má reyna, allt má reyna. Þegar fjölbreytnin hér er orðin of mikil þá er þetta gott ráð gegn því, vonandi getur fólk nýtt sér þetta.