Já shæsen, Ég Sauðurinn sem ég er, Tapa tímaskyni eftir tvo daga án skóla svo mér brá þegar músin fór yfir klukkuna og hún sagði “15:05, Fimmtudagur”
En jæja krakkar mínir, Gleðilega sólstöðu hátíð og flippað komandi ár til ykkar allra!
Gaman að hafa þann heiður að flytja til ykkar fréttir á aðfangadaginn sjálfan!
Also, Ég fíla ekki að vinna í fríinu, Ég heimta stigahækkun með þessari frétt.
En vilduð þið ekki fréttir beipíkeikz?

Leppalúði á vappi í sorpaníu.
Jesús biðst afsökunar á því að afmæli hans hafi verið fært.
Sauðurinn er búinn að strauja jakkafötin.
Nýr stjórnandi.
Jesús 2009 ára í dag.
Mindblast biðst afsökurnar til sauðsins.
Nýtt slangur.
Sauðurinn íhugar að hætta að skrifa söguna sína.
Jólasveinar á snjósleðum á akureyri
Partý hjá snjóa


Já gott fólk þetta eru fréttirnar í dag!

Leppalúði á vappi í sorpaníu
Já gott fólk, Sést hefur til hans á vappi í fjallgarði sauðsins og eitthvað á tjilli niðrí sjoppu að fá sér kók og prins. Hann vildi ekki koma í viðtal vegna þessa. Talið er að hann sé hérna vegna partý Snjómannsins sem verður haldið hér á eftir á Almennt, Öllum velkomið að koma, Leppalúði var í stuttermabol.

Jesús biðst afsökunar á því að afmæli hans hafi verið fært
Já hann sússi gamli, Góðvinur minn, Baðst afsökurnar að afmæli hans hafi verið fært á hina heiðnu hátíð Jól eða Sólstöðuhátíðina. Talið er að flest allir hafi fyrirgefið honum það enda ekki honum að kenna.

Sauðurinn er búinn að strauja jakkafötin.
Já rétt í þessu var SvartiSauðurinn að ljúka við að strauja hin frábæru jakkaföt sín. Þau eru blá. Einnig straujaði hann sokkana sína, Honum fannst þægilegt að hafa þá heita

Nýr stjórnandi.
Hin alræmda Lily2, eða Hafdís, Er nú orðinn stjórnandi og hefur tekið við af Gelgjunni, Sem eins og allir vita misnotaði vald sitt í tætlur. Sauðurinn vill óska henni til hamingju þetta, og einnig það að hún sé að sofa hjá lobba.
Samt eru blendnar tilfinningar hjá sauðnum þar sem er greinilegt að hún geti ekki haldið loforð sín sem fréttamaður, Hvernig verður hún þá sem stjórnandi?

Jesús 2009 ára í dag.
Gratz bro, Einnig eru 33 ár síðan hann kom aftur.

Mindblast biðst afsökurnar til sauðsins.
Mindblast eða Ferska(Gay nafn btw, Lætur þig líta út fyrir að vera kvenkyns sölvi.) Hefur beðist afsökunar að hafa svikið hann í stríðinu um sorpaníu og lofað hollustu sinni til Gorky's. Sauðurinn fyrirgaf honum, Enda miskunnarfullur herra.

Nýtt slangur.
Súrsað er núna nýtt slangur
Dæmi:Djöfull er þetta súrsað
En súrsuð hárgreiðsla marr
Ég og þessi tjellz vorum svo þokkalega súrsuð í gær, Hefðir átt að sjá þetta, hún bara tók hann og ég var alveg mega súrsaður, ýkt súrsað

Mun það koma í staðinn fyrir orð eins og Kúl og Flott
Sjá einnig: Sveitt(Sweet)

Sauðurinn íhugar að hætta að skrifa söguna sína
Ef þið viljið skal ég halda áfram
Langar að skrifa eitthvað um zombies.

Jólasveinar á snjósleðum á akureyri
Voru jólasveinarnir að leika sér á snjósleðum upp í þorpi áðan og skemmtu sér konunglega. Í fyrra voru þeir á gólfbíl.


Partý hjá snjóa
Snjói mun halda partý á Almennt á eftir til fagnar sólstöðuhátíðinni, Stekkjastaur, leppalúði, Jesús, Bjarni Frændi, A newfag, Jón forseti og Baldur nafni minn og góðvinur eru allir á boðslistanum ásamt mörgum fleirum, Eins og He-Man, Skeletor, Shaggy og Clank. Allir að mæta, Mega stuð.



Þetta verður allt í dag, Hafið mega máltíð og skemmtið ykkkur konunglega yfir jólagjöfunum, Þessi jól eiga eftir að verða súrsuð, ég bara veit það.
Ekki það að ég viti neitt um það