“Gott kvöld sorparar í dag er…”

*Launmorðingi frá Laaangbestastur sparkar upp hurðinni að stúdíóinu og hleypur í átt að Grjonagraut með hníf á lofti.
En Grjonagrautur grípur vatnskönnu og brýtur hana á hausnum á launmorðingjanum, sem fellur í gólfið meðvitundarlaus*

"Afsakið þetta sorparar, Laaangbestastur hefur verið að reyna að ráða mig af dögum ssíðan N-hreyfingin sigraði hann.

En þetta er helst í fréttum:


Skeletor snýr aftur
Grjonagrautur byggir sitt fyrsta geimskip
Innrásin í Dyragatt hafin!
Mogwaii treður böngsunum mínum í nærbuxurnar sínar!

Skeletor snýr aftur

HANN ER MJÓR EINS OG BEIN.
ÞRÆLA HANN Á.
HE HAS RETURNED AGAIN.
DREPA HANN MÁ.
GUÐ SUMIR HANN KALLA.
HANS NAFN MÁ EKKI VERA SAGT.
AÐRIR SEGJA HANN MUN FALLA.
HETTA HANS FLÝGUR FAGRT.

HANN.
er erkióvinur Arnar Öskur.


HANN


ER


SKELETOR!



En það er allt í lagi, Arnar Öskur pwnar hann, af því að hann getur það, af því hann er Arnar Öskur

Grjonagrautur byggir sitt fyrsta geimskip

[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=EA9sqzq5DmA

Í morgun var fyrsta geimskip Grjónverska stjörnuflotans geimsett (HAHAHA geimsett! Svona eins og Sjósett HAHAHAHAHA…ehehe… umm, já.)
Skipið er búið svokölluðu sveigjudrifi, sem sveigir rúmið í kringum skipið og gerir því kleift að ferðast allt að 12000 sinnum hraðar en ljósið. Það er einnig búið háþróuðum geislavopnum og orkuskjöldum.

ES. Grjónverski herinn stal EKKI Sveigjudrifinu frá Star Trek og hann stal EKKI geislavopnunum frá TheySeeMeeTrollin!

Innrásin í Dyragatt hafin!

Tugmilljónir hermanna frá ýmsum löndum Nóvemberhreyfingarinnar réðust fyrr í kvöld inn í Dyragatt.
Ekkert er vitað að svo stöddu um gang stríðsins.

Mogwaii treður böngsunum mínum í nærbuxurnar sínar!

Mogwaii tróð böngunum mínum í nærbuxurnar sínar, sem er sérstaklega slæmt fyrir hann vegna þess að ég geymi gælusporðdrekana mína í þeim.

Ekki er fleira í fréttum í kvöld verið þið sæl.

*Launmorðinginn kemst aftur til meðvitundar, en Grjongrautur hendir annari vatnskönnu í hausinn á honum og gengur út*
The Game