Kveldið kjeppzör
Hvað segiði?
Eru ekki allir ferskir á því?
Ég er bara hérna á chillinu og á að segja ykkur fréttir
Þá er kannski gott að nefna það að öllum helstu borgum Langbestastans hefur verið eytt og það syrgir mitt hjarta hversu margir saklausir þurftu að þjást fyrir það. Nóvemberhreyfingin er nú með vald í um það bil 65% landi hans og stríðið heldur áfram.

TheySeeMeTrollin, Sjálfskipaður verndari fólks sorpaníu og hræsnari(Skammar okkur fyrir að nota stórvopn en tók sig til og skar land Zarko frá Sorpaníu, Skapandi eyju. Þetta auðvitað olli dauða þúsunda og stór skemmdi höfuðborg hans sem fór í tvennt og olli miklum umhverfis og dýralífs skemmdum í landi hans.) hefur boðið Nóvemberhreyfingunni frið með þessum skilmálum
Ég skal klófesta laaangbestast og færa Nóvemberhreyfingunni gegn því að ekki verði fleiri gjöreyðingarvopnum beitt í þessu stríði. Þá er nauðsynlegt að kalla á óháða aðila til að kanna hvort stríðsglæpir eða glæpir gegn mannkyninu hafa verið framdir í stríðinu, og draga þá ábyrgu fyrir rétt. Ég krefst þess að Nóvemberhreyfingin geri ekkert til að hindra framgang réttvísinnar, jafnvel þó það kosti refsiaðgerðir fyrir einhverja leiðtoga hennar.

Þá legg ég til að öll lönd Sorpaníu, hvort sem þau eru hliðholl Nóvemberhreyfingunni eða ekki, leggi til sjö prósent af vergri þjóðarframleiðslu til hjálparstarfs og uppbyggingar eftir stríðið, sem mun lækka um eitt prósent á ári næstu sjö ár.

Einnig legg ég til bann á framleiðslu kjarnavopna og annara geryðingarvopna, s.s. efnavopna, sýklavopna og fleira í þeim dúr. Blátt bann skal lagt við uppvakningum, það er réttur hvers manns að fá að hvíla með sæmd er dauðinn kemur.

Ég krefst rannsóknar á fullyrðingum Cubusar um að þar hvíli hin forna illska Ktulu, og samstarf allra þjóða um að vinna að því að skepnan vakni ekki séu fullyrðingarnar sannar. Þá krefst ég einnig þess að hvers konur ódauðum herjum verði eytt fyrir fullt og allt.

Að lokum skal samfélag þjóðanna koma sér saman um grunnreglur sem fara skuli eftir í einu og öllu svo aldrei aftur þurfi að koma til slíks blóðbaðs og nú geysar. Nánari deili þess myndu vera umsamin síðar, en ég hef nú þegar látið mér detta nokkrar tillögur í hug.

Tezcatlipoca, verndari lýðveldisins TheySeeMeTrollin.
Ekki er búið að ákveða hvort við þessu verði gengið, En leggst þetta almennt vel í Hreyfinguna.

Herir Zarkos liggja einnig ílla eftir stríð hans við TSMT en árásum hans hefur verið hætt eftir að Hreyfingin bað hann um það, Enda gat hún ekki komið honum til hjálpar meðan hún er í stríði.

Held að þetta ætti að duga í bili

Dönskupróf hjá mér á morgun..Gaman að því

og munið! Were not laughing at you, Were laughing at how stupid you are

Einnig vil ég benda á að það er opin staða sem fréttamaður.
Ekki það að ég viti neitt um það