Gott kvöld Sorparar. Ég er Grjonagrautur, Foreti lýðveldisins Grjonagrauts og fréttamaður sorpsins á Föstudögum (nema þegar það er fullt tungl).

Í fréttum er þetta helst:

Fréttir sorpsins
Stríðinu gegn GoRky lokið!
Svínaflensan stökkbreytist
“Kick a ginger day”


Fréttir sorpsins

Í gær, Fimmtudaginn 19.nóvember 2009, tilkynnti THT3000 að /sorp hefði eftir árs undirbúning, fengið sína eigin fréttastofu.

Fyrsti sorparinn til að senda inn frétt var Valdabrjálaði einræð… Ég meina lýðræðislega kjörni og hinn vinsæli leiðtogi Snjoikickass!

Stríðinu gegn GoRky lokið!

Stríðinu gegn GorKy er loksins lokið eftir 3 vikna baráttu
milli hersveita GorKys og Bandamanna Nóvemberhreyfingarinnar.

Í fyrstu gekk stríðið illa, Hersveitir GorKys þrömmuðu heila 200 kílómetra inn í Grjonagraut. En þegAR hERSVEITIR gORkYS ÆTLUÐU AÐ VAÐA GRAUTARÁNNA MIKLU (ÚPS CApslock!) sprengdi grjónverski herinn stíflurnar.
200.000 Gorkískir hermenn létu lífið í Grautarflóðinu mikla :_(

Eftirleikurinn var auðveldur fyrir bandamenn.

Svínaflensan stökkbreytist

Norskir vísindamenn hafa fundið stökkbreytta Svínaflensuveiru. Ekki er vitað hvaða áhrif þetta mun hafa á heimsbyggðina en uppvakningauppreisn er möguleg.

Ef að þið sjáið einstaklinga sem hreyfast hægt, bregðast ekki við áreiti, lykta eins og garðúrgangur og stunda mannát skuluð þið hringja á særingamenn eða miða haglabyssu á andlit þeirra og skjóta.

“Kick a ginger day”

Þúsundir rauðhausa fengu marbletti á sköflungana um allann heim í dag þegar æðri einstaklingar spörkuðu í þá í tilefni “Kick a ginger” dagsins.

Chuck Norris, sem er rauðhærður, hefur lofað hefndaraðgerðum.



Fleira er ekki í fréttum í kvöld, GTFO N00bs.
The Game