Ekki fréttir.... 8-) ... .... naw, ég get ekki logið að þér :C ... þetteru fréttir THT3000 vaknaði. Hann verkjaði í allan líkaman.
„Hvar er ég?“
Hann gat ekki hreyft sig. Hann var bundinn við bekk. Herbergið var dimmt. „Halló!“ kallaði hann.
Útlínur tveggja vera birtust í dyrunum.
Ein þeirra steig fram. „THT3000,“ sagði sunnagje, „þú gerðir ekki fréttirnar í gær.“
„Ég ætlaði,“ sagði THT3000, „ ég sver! Það var próf í sem ég þurfti að læra fyrir-“
„Af hverju,“ sagði sunnagje og snéri sér hratt að THT3000, „ætti mér ekki að vera sama um afsakanir þínar? Reyndar! Er ég ánægð með að þú hafir ekki gert þær. Því annars fengi ég ekki að pynta þig.“
„Pynta!?!?! =O“ skrækti THT3000.
„Ég mun ekki gera það sjálf,“ sagði sunnagje, „ég leggst ekki svo lágt. PEEGOONY!!!“
Hin veran gekk fram. Þetta var ógeðslegur, slefandi krypplingur með virkilega misstór augu. „Já, meistari?“
„Gerðu….“ sagði sunnagje brosandi, „það sem þú gerir best…“
peegoony setti á sig kúluhatt og fór að steppa.
„NEI! HITT!“ sunnagje barði peegoony með staf sínum (sem hún hélt allt í einu á.)
„Aaaaah!…“ sagði hann. Hann tók fram skúffu úr borði hliðina á bekknum sem THT3000 lág á. peegoony snéri sér að THT3000 með blóðuga töng.
„AAAHHH! Ókei, ókei… ég skal koma með fréttirnar núna,“ sagði THT3000 og snéri sér að myndavélinni, „þetta var helst í fréttum!“


SATAN ER LESBÍA!
x
G0TLIFE: BRÓÐIR, EIGINMAÐUR… KATTAMORÐINGI?!?!
x
SKEMMILEGGJA NÝ/R…
x
OMG! KÖNNUN SEM KOMST ENGINN FÉKK AÐ KJÓSA Í!!! =O
x
Og fleira?… nei :C


SATAN ER LESBÍA!

http://www.hugi.is/sorp/images.php?page=view&contentId=5471925

… og það versta er að Grimsi92 vissi þetta allan tíman!
Við tókum auðvitað viðtal við hann.

*skipt fyrir utan hús Grimsi92*

THT3000: *bankar*
Grimsi92: *opnar dyrnar* Í fjórtánda sinn: ÉG VIL ENGIN VIÐTÖL!!!
THT3000: Hey, fokk jú, maður! Þú ræður ekkert!
Grimsi92: *hleypur inn í húsið og kemur aftur út með haglabyssu* VILTU DEYJA? VILTU DEYJA, FÍFLIIIÐ ÞITT?!?!?!
THT3000: KANNSKI ÞAÐ, BARA!
Myndatökumaðurinn: *utan ramma* Ekki, maður. Þetta er bara eitt viðtal. Hugsaðu um fjölskylduna þína!
THT3000: *snýr sér að myndavélinni* EKKI BLANDA ÞÉR Í ÞETTA, VÉSTEINN! *kastar hlóðnemanum í myndavélina*
*truflanir*

G0TLIFE: BRÓÐIR, EIGINMAÐUR… KATTAMORÐINGI?!?!

„vona hann brýtur það svo fast að hann kremjir hausinn á kettinum !“ var það sem hann hafði að segja um þetta: http://www.hugi.is/sorp/images.php?page=view&contentId=5462784

Það er bara einfaldlega ekki kúl, sko.

Svo reyndi hann að afsaka sig með: „kötturinn byrjaði“
En við vitum að það er ekki satt. Ég meina: Sjáið hann *bendir á köttinn* Awwwwwww…

SKEMMILEGGJA NÝ/R…

NEI! Meira af kettinum!

G0TLIFE: BRÓÐIR, EIGINMAÐUR… KATTAMORÐINGI?!?! (Aftur)

*horfir á köttinn* Awwwwwwwww… :)

SKEMMILEGGJA NÝ/R…

… og heimtar kexköku fyrir vikið. Hvurslags frekja. Ósvalt.

OMG! KÖNNUN SEM KOMST ENGINN FÉKK AÐ KJÓSA Í!!! =O

http://www.hugi.is/sorp/skodanir.php?page=view&pollId=128425

Hugsið um vesalings Vesaling. Fékk aldrei að… fólk svaraði könnuninni hans…
Við fórum og fengum álit fólksins á götunni:

*skipt á götuna*

THT3000: Þú þarna! Hvað finnst þér um þetta mál.
Parvati: Ég kenni samfélaginu um!
THT3000: Já, ég held að það gæti bara alveg verið rétt, sko.

THT3000: Sama spurning.
Naflastrengur: Sama spurning og hvað?
THT3000: Og þessi sem ég spurði að áðan, auðvitað.
Naflastrengur: Ég var ekkert hérna áðan.
THT3000: … ertu að gera grín að mér?
Naflastrengur: Ha?
THT3000: Ertu… að gera grín að mér? *reiður svipur*
Naflastrengur: Ha… ég… ha?
THT3000: ÉG HATA… ÞEGAR FÓLK…. GERIR GRÍN AÐ MÉÉÉÉÉR! *rífur bol sinn í sundur*
*öskur og truflanir*

THT3000: Hvað finnst þér um þetta?
Afhverju: Um… af hverju ertu ber að ofan með blóð allstaðar á þér?
THT3000: Það skiptir ekki máli.
Afhverju: Uh, ókei…. þá verð ég bara að segja að álit mitt er hægt að útskýra með tilvitnun frá Nietzche: “ Allir hlutir eru viðfangsefni túlkunar, hvaða túlkun sigrar í hvert skipti er komið frá valdi ekki sannleika.“
THT3000: Uhhh… ókeeeei… *að myndavélinni* Þetta var allt í bili!…



„Nógu gott?“ spurði THT3000 peegoony og sunnugje vongóður.
„Mmmmm…“ sagði sunnagje hugsi, „nah“
peegoony lyfti blóðugri tönginni brosandi.
„Nei! NEI! NEEEEEEEEEI!!!“ …