Þrjár litlar fréttir og ljóti grimmi úlfurinn (Ekki fyrir viðkvæma) Myndavélin er alveg upp við andlit THT3000.
„Verið velkomin!“ segir hann, „í enn einn fréttaflutning TSNG!… ég er THT3000 og ætla að flytja fréttirnar í lausu lofti!“
Myndavélin zoomast frá og sést að THT3000 var að hrapa niður úr flugvél með fallhlíf á bakinu.
„Þetta var helst í fréttum!“:


Sautján manns segjast nenna að gefa Pennasafnaranum tölvu!

Vitleysingur færir okkur vitleysu… AF HANDAHÓFI!

8888 þræðir!!!

Skulinn finnst leiðinlegt í vinnunni…

Og síðast en virkilega síst: OMGNOWAI! A.k.a. ohmygawd no wai.


Sautján manns segjast nenna að gefa Pennasafnaranum tölvu!

Já, það er rétt gott fólk. Pennasafnarinn sendi inn könnun þar sem hann spurði fólk hvort það nennti að gefa honum tölvu. 21% svöruðu játandi og það gerir… *tekur upp vasareikni* 17,22 manns! En þar sem ég hef litla trú á að 22% af manneskju finnist á sorpinu segjum við að þetta sé 17. Svona borgar sig að vera gáfaður! Við fórum á vettvang og töluðum við einn þeirra sem svaraði játandi.

*skipt yfir á heimili einhvers*
„NEI, þið getið það ekki! Þetta var djók ég hélt ekki að neinn tæki þessu alvarlega!“ segir eigandi heimilisins og grípur um fót risavaxins manns sem er að bera tölvuna hans út.
„Því miður“ sagði annar kraftajötunn sem er kominn að ná í tölvuna, „við erum bara að sinna stafi okkar.“
„NEEEEEEEEEEI“ segir fyrrverandi tölvueigandinn.

*skipt aftur á fréttaflutining*
TÖLVAN tapaðist hinsvegar stuttu síðar og komst ekki til Pennasafnarans eins og var áætlað… eitt er þó víst: Hún lenti ekki á dularfullan hátt heima hjá mér… *flaut*

Vitleysingur færir okkur vitleysu… AF HANDAHÓFI!

Meistarinn Hellscream kom með magnaða grein sem innihélt meðal annars: Spuningar, orð sem er gaman að segja, rímandi skrýtlur (yeah, I said it), guðlast, ljóð, punchline-lausann brandara og mikilvægar upplýsingar. Já gott fólk ég sagði: Spuningar, orð sem er gaman að segja, rímandi skrýtlur, guðlast, ljóð, punchline lausan brandara og mikilvægar upplýsingar… og FLEIRA!

8888 þræðir!!!

Og hver var það sem gerði þráð númer 8888? Nú auðvitað *dregur miða úr umslagi* SINSIN!!!
Gefið honum gott klapp! *einn klappar… sem er skrítið því þessi frétt á sér stað í lausu lofti*

Við spurðum manninn á götunni hvað honum finnst um þetta:

*skipt yfir á götuna*
MAÐUR: Jah, mér f-
*skipt á fréttaflutning*

Skulinn finnst leiðinlegt í vinnunni…

- Sjá titil - (magnaðar fréttir, eh?)

Og síðast en virkilega síst: OMGNOWAI! A.k.a. ohmygawd no wai.

Eitthvað æði hefur gripið um sig. Byrjað af skrímslum svo illum að ég dirfist ei að nefna þá á nafn. Fólk allstaðar um sorpið er byrjað að láta frá sér þessi ömurlegu orð.
En ég segi: Hættir, í guðana bænum HÆTTIÐ!!! *grætur*



„Þetta var THT3000 að flytja ykkur fréttir“ segir THT3000 og togar í spottann á fallhlífinni. Ekkert gerist. „Þetta er ekki fallhlíf“ öskrar THT3000 upp í átt að flugvélinni, „þetta er bakpoki. NOOOOOOOOOO“ og svo dettur hann inn í miðjan skóg með miklu braki og brestum.

Fyrir ofan hlær flugmaður flugvélarinnar sem THT3000 stökk úr. Hann tekur af sér grímu. Hann er… LADDIS!