*rosalega cheesy theme song byrjar*

Þegar allt virðist glatað og heimurinn í rúst
Þegar þú getur ei ratað og þarft smá boost
Og þú við lífið algjörlega ósátt/ur ert
Blaðran að gefa sig og minnið skert

Þá eru fréttirnar alltaf á sínum stað
Og alltaf er gaman af þeim
Maður þarf ekki einu sinni að hugsa um það
Maður er sæll er maður finnur fréttakeim

Choco, Parv. Og Dr.Haha
Koma með gleðina með sér
Þegar þú lest fréttir, ferðu að gapa
Og síðan hlærðu rassinn af þér.

Og núna góðir gestir
Er komið af því aftur
Því sem sammála yrðu flestir
Að í sé feiknarkraftur
Fréttir enn á ný
Og þið hafið öll gott af því!


Choco: Úh, yeah. Texti dauðans! Anyways, það er komið að fréttum TSNG! Og í fréttum er þetta helzt.

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
Lög tengd við sorpara!
Pési enn á ferð
2000+ korkar í ruslafötunni!
Parvati ósátt með innihaldslausa korka
DrHaHa and the Candy Factory!
Viðtal DAUÐANS!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _



Lög tengd við sorpara!
Ofurbeibíið Parvati gerði á dögunum afskaplega skondin og skemmtilegan kork, hún spurði fólkið hvaða lög þau tengdu við hvaða sorpara.

Þið skiljið mig? Þegar maður heyrir eitthvað lag dettur manni oft í hug manneskja… Og, æjji vá, ef þið fattið þetta ekki eruð þið bara freðin : D

Margt og mikið kom upp og … tjékkaðu bara á þessu sjálf/ur http://www.hugi.is/sorp/threads.php?page=view&contentId=4898554

Pési enn á ferð
Jahá! Sykurpúðinn samkynhneigði hann Pési er enn á kreiki og gerir fleiri korka en nokkru sinni fyrr. Nýjasti korkur hans fjallar um það hvernig LindeLou sveik hann og eyddi þræðinum hans “Cosomic Girl”. Pési er ekki sáttur við það. Í korknum segir hann líka frá hópsamtali sem átti sér stað á msn þar sem allir lögðu mig í einelti og breyttu nafninu sínu í mitt nafn. Ég mun hefna mín einhverntíman … bíðið bara róleg.

2000+ korkar í ruslafötunni
Já! Það er rétt! Gexux hinn undursamlegi átti þann heiður að gera tvöþúsundasta korkinn í ruslafötunni. Við óskum honum öll til hamingju með það og gefum honum saman eitt stórt knús! Þetta hefur verið draumur hans síðan hann kom inná huga fyrst og hann ákvað að hann SKYLDI sko ná að gera kork 2000.
Sem minnir mig á línu úr lagi hjá frægum rappara.
… sem þið fáið ekki að heyra. FEIS! Þið megið samt giska ef þið viljið.

Parvati ósátt með innihaldslausa korka
Mmmmmhm, mikið rétt. Parvati gerði kork um …
*Parv. Hleypur inn*
Parv: Jó, Choco má ég ekki gera þessa frétt fyrst hún er um mig?
Choco: Ég var nú eiginlega …
Parv: *ógnandi augnarráð*
Choco: Ehh. .. hérna endilega sjáðu um fréttina!
Parv: Takk þú ert æði!

Parv: Já gott fólk, ég gerði kork um það að ég er alls ekki ánægð með að fólk sé að gera korka með einu orði eða eitthvað bara út af því leiðist. Ég er ekki FOKKIN ánægð með það! Svo hættið því strax! Þið gerið mig stundum SVO REIÐA!
*ChocoboFan hleypur og tekur hana burt með nokkrum erfiðleikum*
Choco: Og að næstu frétt … heh.

DrHaHa and the Candy Factory!
Ómjá! DrHaHa fékk í dag mikið nammi frá systur sinni og deildi með okkur upplifuninni af því!

Ég er rétt í þessu að borða sleikjó sem bragðast eins og einhver hafi brætt kók og hunang saman (hann er meira að segja á bleiku priki), gular kalkbaunir með dökku og skrýtnu súkkulaði inní og karamellu-hlaup köggla með einhverju inn í sem gæti allt eins verið lifandi :O
Ótrúlegt hvernig nammi hægt er að fá í Kína og Tælandi :Æ Lífsreynsla að borða þetta!
Það er currently eitthvað gums inni í bleika sleikjóprikinu, ég ætla að prófa að borða það og gá hvort að ég lifi það af :O

Þetta sagði hann um málið, ég vil síðan benda á að það var ég sem kvatti hann til þess að borða gumsið og það bragðaðist víst frekar illa.

Viðtal DAUÐANS!
Já, nú er komið að viðtalinu og Parvati ætlar að taka viðtal við …
*DrHaHa kemur stormandi inn*
HaHa: Hey maður! Ég vil taka viðtalið, ég er ekkert búinn að koma í þessum fréttum. Hún kom áðan.
Choco: Þú ert búinn að koma núna …
HaHa: Þetta telst ekki með maður!
Parv: Hey dúds, hvað er í gangi?
HaHa: ÉG VIL VIÐTALIÐ!
Parv: Nehei kallinn minn, það er mitt!
HaHa: Jæja … við sjáum til þegar þú ert DAUÐ! *tekur upp byssu*
Parv: Hæjah! *ninja spark í byssuna og hún fleygist burt*
Choco: Svona nú krakkar, ofbeldi leysir ekkert.
HaHa & Parv: ÞEGIÐU!
HaHa: *slappar Parv.*
Parv: *fer að gráta* Af hverju myndir þú lemja stelpu? Af hverju …?
HaHa: Ó … fyrirgefðu … ég …
Parv: HAH! *tekur hann by surprise og hrindir honum á jörðina
HaHa: NOOOOOOO! *fellir hana*
Parv: ARGH!
*Þau liggja bæði hreyfingarlaus á jörðinni*
Choco: Uhm … það verður víst ekkert úr þessu viðtali. Ég … býst við því að þetta sé þá bara komið. Bless .. heh …!

*credits roll*
I'm a winner, I'm a sinner. Do you want my autograph?