Über Alles Fréttir! *Myndavél súmmar inn á háan turn TSNG, fer eftir jörðinni en þegar hún er komin alveg upp að turninum fer hún hratt upp á meðan spennandi tónlist heyrist, og innum glugga þar sem DrHaHa situr við fréttaskrifborðið sitt*

Góðan daginn kæru Sorparar… *Sköllóttur kall með skegg kemur inn*
Skalli: HrHaHa, þessi myndavél *bendir*Já, takk fyrir Bónó, góðan daginn kæru Sorparar, nú er komið að über fréttum í boði DrHaHa! Þetta er helst í fréttum:

**********
Fréttayfirlit
* Brynjar framkvæmir hryðjuverk á fréttakubbnum!
* Parvati über alles fréttakona
* Pési er perri :O
* Mexíkóski kötturinn hans Ívars
* Ofurmennin á Sorpinu ;D
* Yet another Friday the 13th :’(
* Heitar umræður
**********

Brynjar framkvæmir hryðjuverk á fréttakubbnum!

Hann Brynjar, a.k.a. Rakshakslaksnóksviks a.k.a. oRiley, a.k.a. ORiley, a.k.a. Bulbasaur var nýlega rekinn úr TSNG fréttamálasamfélaginu fyrir að inveida Sorpið með alvarlegum fréttum. Margar mismunandi tilfinningar fylgdu í garð fréttanna: Fuckface fór að hlægja, DrHaHa fór að gráta og Parvati og Padfoot misstu vitið og jeijuðu.
Brynjar, sem telur sig alsaklausan í þessu máli, er ósáttur með niðurstöður réttarhalda Lexu, Bjarna og Vigga!


Parvati über alles fréttakona

Alltaf heyrir maður eitthvað nýtt, nú eru fréttamenn farnir að vera KVENKYNS :O
Parvati er nú orðin fréttakona, aftur, eftir mikið væl í núverandi fréttamönnum og stjórnenda :O Við sem höfum séð Anchorman vitum öll hve hræðilegt er að hafa konu sem fréttamann, lærum við ALDREI af mistökum?
Hvernig endar Parvati málið? Hvað verður nú um… *sköllótti maðurinn kemur aftur inn*
Bónó: HrHaHa, Parvati hefur verið terminated!
DrHaHa: Eeeeeexelent (Mr. Burns hreimur)



Pési er perri :O

Eða það gefur meirihluti Sorpara í skyn! Pési segist sjálfur vera alsaklaus og veit ekkert af hverju Sorparar gefa þetta í skyn :O Hann segist líka bara hafa “óvart” sett DP myndina sína inn og geti ekki tekið hana út!

Mexíkóski kötturinn hans Ívars

Kötturinn hans Ívars/Devós/Clash/Echoes, hann Köttur, pósar hér á Sorpinu!
http://www.hugi.is/sorp/images.php?page=view&contentId=4771375
Ívar meikaði hann sjálfur upp fyrir pósið, enda er gula skeggið hans vel upprúllað og hárið flott í hnút. Sjálfum sýnist mér þetta vera mexíkóskur flatköttur, en ég gæti haft rangt fyrir mér :S


Ofurmennin á Sorpinu ;D

Hann Rakvélarblað sendi inn stórskemmtilega grein á Sorpið þar sem DrHaHa er úber vondurkall og stjórnandi Sorpsins underneath! Rakvélarblað sjálfur gerir vonlausar tilraunir til að sigra DrHaHa þó svo að hann viti að hann hafi ekkert í hann!
Við bíðum spennt eftir framhaldi sögunnar um Oferhetjurnar og hinn über frábæra DrHaHa…


Yet another Friday the 13th :’(

Já, nú er annar óhappadagur liðinn! Ekkert sérstakt kom fyrir mig, bara bolti í pung og gleraugu týnd í skólanum :’C


Heitar umræður

Hann H13 kvartar því að Sorpið kemst aldrei í heitar umræður :O Þessvegna biður hann Sorpara um að spamma rassinn af sér til að koma korkinum hans þangað :/ Sá ætti bara að vita að umræður Sorpsins fara ekki í heitar umræður :C
Margt hefur komið í ljós í þræðinum, Pési er perri (surprise surprise), Laddis líka, LindeLou er fullkomnisti, Tandri er lélegur spammari, Sunnagje er BLÁ :O ChocoboFan veit allt um Búlgaríu n’so on…
Let’s just hope he’ll make it :P

**********

Og þááá er komið að viðtali dagsins, ChocoboFan ætlar að taka viðtal við hann Brynjar um fréttirnar hans! Yfir til þín Choco:

Choco: Já, þakka þér fyrir DrHaHa, hér er ég með hryðufréttamanninum Brynjari!
Brynjar: Sæll :@
Choco: Segðu mér Brynjar, hvernig lýður þér yfir að hafa verið rekinn?
Brynjar: Var ég… rekinn?
Choco: You bet!
Brynjar: En þetta var bara saklaust grín, óþarfi að gera svona mikið úr þessu :O
Choco: Jæja, þú varst samt rekinn, en segðu mér Brynjar, er ekki…
Brynjar: Á EKKI BARA LÍKA AÐ BANNA MIG, HA? SVIPTA MIG STJÓRNENDASTÖÐUNNI?
Choco: Neinei, en Bynjar, er ekki…
Brynjar: Á EKKI BARA AÐ GERA MIG ÚTLÆGANN? BRENNA MIG Á BÁLI? HA? :@
Choco: Brynar, róaðu þig *stígur skrefi nær*
Brynjar: Óh, that’s it! Ég er með köttinn þinn í gíslingu! *tekur upp köttinn og hníf*
Choco: NEI, ekki köttinn minn, ég skal gera ALLT fyrir þig :O
Brynjar: Já, þú mátt byrja á að pússa skóna mína og nudda tærnar mínar, og svo máttu…


Hehe, bestu vinir þeir Viggi og Brynjar! En nú er fréttunum lokið… Lifið heil þangað til næst þegar við sjáumst. Þá megið þið lifa hálf :’D

*Credits roll*