Previously on Fréttir:

Skúli: Þetta mál er dýpra en það virðist Jónatan!
Jónatan: Já .. ég fann hver svikarinn var …
Skúli: Og .. hver var það?
Jónatan: ÞAÐ VARST ÞÚ!
DUNN DUNN!

Maður: Ef þú aftengir ekki sprengjuna mun allur heimurinn farast!
Annar maður: En hvaða vír .. sá rauði .. eða sá blái?
Maður: Veldu annan þeirra fljótt!
Annar maður: .. megi guð vera með okkur … *klipp*

Mr. Blake: Hans .. faðir þinn er ekki dáinn … ég .. er faðir þinn
Hans: NEEEEEEEII! ÞAÐ ER ÓMÖGULEGT!
__________________________________________________


*fréttastefið mikla heyrist*
Og hér kemur sá .. sem allir hafa beðið eftir … ChoooooocoboFaaaaaan! *klappklapp*

*ChocoboFan hleypur inn veifandi og brosandi*

Jó! Það er kominn tími fyrir fréttir! Og það sem er svona helst í fréttum núna er … ÞETTA!


Fréttir!
* LindeLou minnir fólk á reglur sorpsins
* 80 ára gamall karlmaður gengur inná Zimpo í sturtu
* DrHaHa hneyklsaður á textaþýðingum í The Insider
* Dönsku mótmælt!
* Parvati snúin aftur!
* Pési sakaður um grunsamleg athæfi ..
* Engar nýjar greinar!

LindeLou minnir fólk á reglur sorpsins

Já, LindeLou og sorp stjórn. segja að allt of margir hundsi reglur sorpsins! Hún hefur hótað að banna hvern þann sem “behave-ar” ekki eins og hún orðaði það. You go girl!
… I can’t pull that off .. can I? Já hún LindeLou hefur ekki verið stjórnandi lengi en hún hefur afrekað furðu margt á þessum stutta stjórn tíma. Klöppum því fyrir henni *klappklapp*


Þess má geta að LindeLou ELSKAR Lindsey Lohan, hún hefur séð allar myndirnar hennar 20 sinnum, hlustað á alla tónlistina, og LindeLou er stytting á nafninu Lindsey Lohan!


80 ára gamall karlmaður gengur inná Zimpo í sturtu

Hvernig er heimurinn að verða spyr ég? Maður getur ekki lengur tekið sturtu í friði án þess að 80 ára gamall gaur gangi inn á mann. Já, henni Zimpo beibí brá vitanlega við þetta. Þessu sagði hún frá í löngum og innihaldsríkum korki sínum sem bar hið frumlega nafn, “Zomgzlikelolness”. Hún segist hafa öskrað svo hátt að hún hafi næstum gefið karlinum hjartaáfall.

DrHaHa hneykslaður á textaþýðingunni í The Insider

DrHaha brá illilega þegar hann var að horfa á The Insider og orðið Insider var þýtt sem Laugarásbíó í myndinni. Fjöldi vitna staðfestir það að hann hafi gjörsamlega brotnað niður á staðnum og var ekki talhæfur í langan tíma eftir á. Sem betur fer náði ég viðtali við hann.

ChocoboFan: Hvernig líður þér svo eftir þetta?
DrHaHa: Hvernig heldurðu að mér líði? Ha? HA?
ChocoboFan: Illa býst ég við ..
DrHaHa: Já … Já mér líður sko FRIGGIN’ ILLA!
ChocoboFan: Mhmm .. einmitt.
DrHaHa: Það er eins og .. eins og einhver hafi bókstaflega rifið hjartað úr mér .. og .. og gefið það úlfi .. eða eitthvað.
ChocoboFan: .. einmitt … einmitt.

Hann segist ætla að taka sér langt frí og dvelja hjá frænda sínum í fjallakofa einum í Noregi í einhverjar vikur.

Dönsku mótmælt!

Þetta hlaut að gerast fyrr og síðar. Dönsku var mótmælt af hinum unga .. hreggimos. Sem er 14 ára, karlkyns mannvera sem býr í mosó. Honum finnst að maður ætti að mega velja um hvaða tungumál maður á að læra. Fólk tók undir þetta. Fólk mótmælti þessu.

Parvati snúin aftur!

Já það er rétt! Eðal sorpzterinn Parvati er snúin aftur! Kennitöluvesen eitthvað með hana segir hún, svo að hún var bönnuð. Og svo var hún í útlöndum. Hún ætlaði að senda bréf til Vefstjóra en .. nei .. hún gleymdi því …
Nú tel ég að smá quote frá henni sé við hæfi.

En það er gott að vera komin aftur : )

Gott að fá þig aftur … beibí!



Pési sakaður um grunsamleg athæfi ..

Það varð uppi fótur og fit (hehe) þegar sykurpúðinn hann Pési var sakaður um grunsamlega athæfi á sorpinu nýlega. Ónefndur aðili átti víst að hafa sent honum PM varðandi 1500 kallinn sem maður á að hafa með sér á samkunduna næstu. Ónefnda aðilanum fannst grunsamlegt að Pési væri að segja öllum að koma með pening, það hljómaði .. gruggugt. Aðrir voru greinilega á sama máli eins og sjá mátti þegar Pési bjó til kork um þetta mál. Hann neitaði hins vegar öllu og sagðist einungis vilja að allir kæmu með pening til að kaupa sér stöff …

Engar nýjar greinar!

Já það er rétt .. engar greinar .. ekki ein. Elsku sorpararnir mínir, þið verðið að fara að senda inn einhverjar almennilegar greinar handa okkur. Ég er reyndar á fullu núna að skrifa SorparaSögur Episode II sem allir verða að lesa b.t.w.
En fólk verður að fara að senda inn greinar ef það vill ekki enda uppi eins og Stefán ..
Hver er Stefán segið þið? Þetta er Stefán. *sýnir ykkur mynd af Stefáni*
Greinar! Og ég verð glaður … en Engar greinar! Og ég drep ykkur hægt … skilið?


Þar til næst, þetta hefur verið hinn mikli ChocoboFan .. ég kveð ykkur nú!
I'm a winner, I'm a sinner. Do you want my autograph?