*Fox lógóið* Bammbaramm, bimmbommbimmbommbimm bammbaramm, sjúbidídú, trallala, sjúbidídú, trallala, sjíbedídúúú, rammbommbimmdimm (æ, þið vitið hvernig þetta er :S)

Í samvinnu við:

*Universal lógóið* … Fux og Öniversal kynna:

Meistaraverk Valt Disney?
TS: NG (Terminator Seven: the Nacho Gay)


*DrHaha gengur inn í svartri kápu með vélbyssu*
Ya talking to me? *DrHaha skýtur þig í tætlur)… Ókey strákar, ég held að við þurfum að taka þetta aftur! *DrHaha gengur inn í svartri kápu með hatt og vélbyssu* Ya talking to me?

Saga okkar hefst þann dularfulla dag, laugardaginn uhh (starir á skjáinn)… eitthvaðasta október. Sorparar eru ekki látnir í friði af hinum ógeðslega illræmda og ljóta DrHaha, sem ætlar sér að… Hey, ég átti að fá að leika hetjuna! Hvað er að ykkur. Ég er með of frítt fés fyrir svona lagað :@

*Ofur Alli hleypur inná skjáinn með skilti* Ég vil taka það fram að þetta verkefni er styrkt af Fux og Öniversal. Heill sé þeim. Kaupið ruglið þeirra! *Ofur Alli hleypur út*

Well, DrHaha, hinn ofboðslega fríði og góðhjartaði vondikall sögunnar, hafði lengi skipulagt hina illræmdu áætlun. Sú áætlun myndi orsaka miklar hörmungar á Sorpinu, jafnvel endalok Sorpsins. Sú áætlun var svo illræmd að aðeins mesta hetja Sorpsins gat stöðvað hann. Sú hetja var…

*Ofur Alli hleypur inná skjáinn með skilti* Ég vil taka það fram að þetta verkefni er styrkt af Fux og Öniversal. Heill sé þeim. Kaupið ruglið þeirra! *Ofur Alli hleypur út*

Uhh, já… …sú hetja var… uhh… Humblruff… Strákar, skjárinn er eitthvað bilaður…
Jamm, engin hetja gat semsagt stöðvað DrHaha, hann drap alla sem reyndu að stöðva hann með sínu eitursvala augnráði O.o Katjíng! En áður en að DrHaha framkvæmdi áætlunina ákvað hann að segja fréttir!

*Ofur Alli hleypur inná skjáinn með skilti* Ég vil taka það fram að þetta verkefni er styrkt af Fux og Öniversal. Heill sé þeim. Kaupið ruglið þeirra! *Ofur Alli hleypur út*


Í fréttum er þetta helzt:

* Ítalíudúddinn sem fór til Möltu
* Fáir sakna fréttanna
* Stundin okkar
* Smarter Child grímubúningur
* Batman merkið myndað með sokkum (samsæri eður ey)
* Talandi kanarífugl drekkur vatnsglas á hvolfi!



Ítalíudúddinn sem fór til Möltu

*DrHaha ræskir sig* Ítalí…

*Ofur Alli hleypur inná skjáinn með skilti* Ég vil taka það fram að þetta verkefni er styrkt af Fux og Öniversal. Heill sé þeim. Kaupið ruglið þeirra! *DrHaha tekur skiltið af Ofur Alla og rífur það í tætlur*

Þá er það afgreitt, hættið endilega að styrkja okkur!
Þetta myndband sýnir af hverju Ítalíumenn ætti ekki að heimsækja Möltu. Og ef að einhverjum dettur það í hug, ekki tala ensku!
Ítalíumaðurinn sem hér er á ferðinni hefur framið þann hroðalega glæp að skíta í rúmið sitt og því mun DrHaha afgreiða það mál. Ég á einnig eftir að gera upp við þig Pulse fyrir að opinbera þessa skýrslu. Muhahahahaha *mjög ívöl hlátur*


Fáir sakna fréttanna

*DrHaha stígur útúr skugganum* (ísköld rödd) Samkvæmt nýjustu rannsóknum mínum sakna mjög fáir frétta Sorpsins, sem hafa nýlega tekið uppá því að hverfa (hva, ekki líta á miiig). Sú tillaga hefur komið upp að hafa fréttir annan eða þriðja hvern dag, tillaga sem ég styð! Þeir sem mótmæla verða termíneitaðir! *Jaws thímið*


Stundin okkar

Athugið að efni þessarar fréttar er ekki við hæfi barna eldri en 12 ára! Hræðilegar ógeðslegt málefni hér á ferðinni.
*Hreyfir augun frá hægri til vinstri til hægri til vinstri nokkrum sinnum* Fréttin fjallar um… Stundina okkar *dammdammdammdamm* Hey, vó, á þetta ekki að vera spennufrétt? Æ, well:
Stundin okkar er skemmtileg, það er gaman. Við munum öll eftir Ástu og Kela og Gunna og Felix og Glámi og Skrámi og fleirum. Sorparar minntust þeirra í dag, syrgja fallna og gleðjast þeim nýju :D *Dimm rödd* “DRHAHA, ÉG ER FRAMKVÆMDARSTJÓRI ÖNIVERSAL! ÞÚ ÁTT AÐ KOMA MEÐ EITTHVAÐ SPENNANDI!”
Ummm… *DrHaha ræðst á sjálfan sig með butcher hníf*


Smarter Child grímubúningur…

Öll veltum við fyrir okkur sömu spurningunni, hver er á bakvið grímuna. Það eru til margar mismunandi grímur. Gríman er tildæmis leiklistarverðlaun, Ríkissjónvarpið er örugglega á bakvið það (hver veit?)… Einnig eru til andlitsgrímur (sem hylja aðeins andlit einstaklings) og grímubúningar (sem að fólk notar til að dulbúa sig, það klæðir sig í þá. Ef að þú skilur ekki eitthvað skaltu leita þér leiðarvísis, við viljum halda ýmsum málefnum leyndum ;| ) En hver var á bakvið hinn undursamlega Smarter Child búning?
Til að svara við þessari frétt þurfum við að leita langt aftur í tímann. Grímubúningar voru ekki til þá. Við skulum snúa aftur til nútíðar… Umræddur grímubúningaklæddi (*klæddi*, að klæða sig, klæði, (þessi þáttur er einnig styrktur af Íslensku orðabókinni)) aðilli mætti á mjög grunsamlegt grímuball. Demona var viðstödd og náði þessari mynd af ótilgetnum aðilla. Hvað segir þú um það Demona?

Demona: “Tjaaa skooo”
DrHaha: “Nú, er það virkilega?”
Demona: “Neeeiii, skooo”
DrHaha: “Áhugavert”


Enn hefur spurningunni ekki verið svarað, hver er á bakvið grímuna. Ó, jú, það er víst Markús. Nú er ég búinn að eyða dýrmætum tíma í leista ráðgátu :’C


Batman merkið myndað með sokkum (samsæri eður ey)

Kæru Sorparar, við Termínfréttamennirnir munum nú gera okkar besta til að útrýma risastóru samsæri! Ótilgetnir aðillar eru víst…

*Ofur Alli hleypur inná skjáinn með skilti sem að á stendur: “Kexgott frá Nóatúni”* Ég vil taka það fram að þetta verkefni er styrkt af Fux og Öniversal. Heill sé þeim. Kaupið ruglið þeirra! *DrHaha dritar úr vélbyssunni í magann á Ofur Alla og lemur hann svo undir nefinu þannig að nefbeinið skýst uppí heila*

Úps… *Hendir Ofur Alla nokkra kílómetra í burtu*

Ótilgetnir aðillar eru víst að summona Batman með sokkunum sínum, rannsóknir okkar sýna að þeir ætli að láta hann rústa Sorpinu! Kæru almennu Sorparar, brennið sokkana ykkar til að eigi sé hægt að láta hann gera þetta!


Talandi kanarífugl drekkur vatnsglas á hvolfi!

Þó svo að margar undarlegar og undnar sögur séu til stendur ein saga uppúr. Sú saga er um kanarífuglinn Jón sem er gulur á litinn, hann framdi það mikla afreksverk að drekka vatnsglas á hvolfi! Þetta afreksverk er einstakt þar sem að hann var ekki á hvolfi sjálfur þegar hann gerði þetta, heldur var vatnsglasið á hvolfi! Þetta er auðvitað óframkvæmilegt þar sem að hann gat engan veginn náð vatninu úr glasinu, svo að þetta er bara tómur uppspuni!


Nú er komið að hinni illu áætlun DrHaha, sú áætlun…
Oh, noes… the Sorp protectors (grúppa sem verndar Sorpið). They will never get a vendetta! *DrHaha hleypur svo hratt í burtu að fæturnir hans verða eftir…*
_____________________________________________

Váááá hvað þetta voru sökkaðar “síðustufréttir” hjá mér =S En mér fannst samt gaman að gera fréttir, vona að þetta komi einhverntímann aftur :Æ