Dánarfregnir og Jarðarfarir :'C *DrHaha kemur inná skjáinn alvarlegur á svip og sest við risastórt pípuorgel*
*Hann byrjar að spila “Dánarfregnir og Jarðarfarir”, myndavélin sýnir alla Sorparana sitja á bekkjum og snökta*

Dimmdommdammdídídimmdomm…

*DrHaha stendur upp ennþá alvarlegri á svip*
Nú verða sagðar fréttir! *Sorparar bresta í grát*

Helst í fréttum:
• Samkundan jörðuð eftir eins árs afmæli sitt (Sorparar grenja eins og vitleysingar)
• Dönskupróf :O
• Pési fær flashback!
• Kvöl að vera á Sorpinu :O
• Root Beer
• Litlir krakkar drekka hákarlalýsi
• Talandi Kanarífugl drekkur vatnsglas á hvolfi!



Samkundan jörðuð eftir eins árs afmæli sitt!

*Sorparar kveikja á kertum og haldast í hendur, Dánarfregnir og Jarðarfarir í botni*
Kæru Sorparar, Hugarar, Ízlendingar, Evrópúar og Heimsbúar! Nú hefur Samkunda Sorpsins yfirgefið okkur fyrir fullt og allt… Sorparar syrgja allir þennan einstaka atburð er Samkundan var, jafnt þeir sem mættu og mættu ekki!
*Einnar mínútu þögn*
Enívei, undirritaður fréttamaður hefur heyrt að samkundan hafi heppnast vel, þrátt fyrir sóðaskap á Amerískum Stíl, sem ónefndur *hóstbrynjarhóst* aðilli ber ábyrgð á :@

________________________________________________
Dönskupróf :O

This one’s just in!
Bekkur Túkalls tók Dönskupróf um daginn og meðaleinkunnin var 2,5 :O Það er auðvitað ómannlegt að ná svo lágri einkunn á Dönskuprófi :O Snakker dú dansk? Eða var það Spiser dú dansk???
Enýwei, echoes fékk 9,7 á síðasta dönskuprófinu sínu, nördinn atarna :@

_________________________________________________
Pési fær flashback!

Pesi er nú að berjast fyrir því að koma myndbandi á YouTube! Myndbandið sýnir aumingja Pésa þegar hann var í leikskóla í viðtali við Hemma Gunn:

“Hemmi Gunn : hefur þú komið til útlanda ?
Ég : Já !
Hemmi : núnú og hvert hefurðu komið ?
Ég : til vestmanneyja !”

Undirritaður skilur ekkert í því hví hann vill koma þessu á netið, en bíður samt spenntur eftir að fá að sjá það og hlæja sig í hel :Æ
P.S. Fyrir ykkur sem eru virkilega seinfatta, þá eru Vestmannaeyjar hluti af Ízlandi!

________________________________________________
Kvöl að vera á Sorpinu :O

Sorpurum var misboðið í morgun þegar Eurynomus sendi inn… frekar ósmekklega mynd af sér! Menn ældu og konur féllu í yfirlið þegar þetta risastóra skrímsli gretti sig í hel! Sjálfur mun ég aldrei jafna mig eftir þessa hræðilegu grettu…

________________________________________________
Root Beer

Pétur Gunnarson dettur í það með Diet Rótarbjór, á meðan Peanutbutter drekkur 5 dósir af Red Bull! Sjálfur hef ég ekkert á móti Rótarbjór, hann bragðast eins og höfuðverkjartafla :S Hins vegar hefur undirritaður aldrei smakkað Rautt Hrekkjusvín :’C
Við óskum þeim til hamingju!

________________________________________________
Litlir krakkar drekka hákarlalýsi

Við sem eldri erum munum ennþá þá tíð er börn skrúfuðu frá krönum þorska og drukku ferskt þorskalalýsi! Echoes minnti okkur á þessa tíð í dag með þessari yndislega fallegu mynd! Því miður entist þetta ekki lengi, þar sem að lýsi þótti óbragðgott og börn lentu í slysum vegna of góðrar sjónar :C
Þegar lýsistöflurnar komu þurftu þorskarnir að leita til sjós aftur eftir að hafa farið svo illa á hausinn að hann var orðinn innstæður!

________________________________________________
Talandi Kanarífugl drekkur vatnsglas á hvolfi!

NEEEIIIII, ARRRRG GAAAAARG!!!!! *DrHaha slefar 2 lítrum af munnvatni á gólfið og hleypur um eins og hæna*
*Menn í hvítum sloppum koma og taka DrHaha í burtu. Krizza4 flýgur inn í superwoman búningi og eyðir blaðinu með leiseraugum*

Bzzzzzzdkrasssszzzzz