Við erum stödd á fréttastofu TSNG!
Aðalfréttaritararnir, Birta, Kata, Járni, Jóhann Óli og Bryndís sitja við borð og sötra fjallavatn frá Nepal..
Varafréttamenn sitja svo við smáborð og þamba kranavatn.
Meðan allir tala saman í rólegheitum kemur Alli gleðispillir frá varafréttamannaborðinu,
Alli: Kata! Fréttirnar frá 23 apríl?! Hvar eru þær?
Kata: ehe.. ég get útskýrt…
Alli: útskýringar eru óþarfar! Drattastu til að gera þessar fréttir núna! Ég tek þær svo fyrir Bryndísi í kveld! Skilið?!
Kata: Jaá.. en.. en.. awwh.. =(
Alli: Tjopptjopp! Orðspor TSNG er í húfi! Ég gerði þig ekki að aðalfréttaritara í stað mín til þess að þú gætir eyðilegt fréttaplanið!

*Kata stendur upp og muldrar ritskoðuð orð! Leið og hún labbar í burtu stelur Alli sætinu hennar og byrjar að sötra á eðal Nepal fjallavatninu.. *

*Umhverfi Kötu breytist.. í stað litríkrar og hlýlegrar kaffistofu (eða vatnsstofu) TSNG tekur við fölleitt studio.. hljóðmenn og myndatökumenn eru klárir en fýldir yfir aðeins 3 daga seinkun!*
“Pff á þaá!”

“Gott kveld! Þetta eru fréttir 23 apríls í seinni kanntinum!”


Staaaaðan..
^^^^^
Nesi fermdur og á leið til Svíþjóðar!
^^^^^
Vinnaa!
^^^^^
B fyrir Bored og L fyrir Leiðast!
^^^^^
Gleymska!
^^^^^
Mizzeeh hættur!
^^^^^
Slæmur dagur? :/
^^^^^
Aaaafmæli!
^^^^^
Myndir
^^^^^


Staaðan!
^^^^^
10 Almennt korkar og 1 ruslafötukorkur þann 23 apríl!
Einnig voru sendar inn nokkrar myndir en en engin grein!
Tada!
Nesi fermdur og á leið til Svíþjóðar!
^^^^^
Já hann Nesi.. betur þekktur sem RobbieFowler fermdist þann 13 Apríl eða á Skírdag.. Til hamingju með það ^^
Fermingin gekk skítsæmilega að hans sögn :)
Hann er einnig að fara til Svíþjóðar! Og þá ekki í sumarleyfi.. oneonei.. heldur er hann að fara að flytja þangað.. aftur! :o
Hann semsé fæddist þar Jönköping í smálöndum!
Ævisaga hans er á seérstöku tilboði þessa helgina! Allir að tjékka á því ^^



Vinnaaa!
^^^^^
LambOfGod bauð uppá vinnu í fermingu frænda vinar síns!
Vinnan var þannig að fermingarkakan var sett á bak einhvurs og viðkomandi átti að elta fermingarbarnið útum allt!
Ágætis vinna, en enginn laun!
Lááásý! :/


B fyrir Bored og L fyrir Leiðast!
^^^^^
Jáh.. honum Sindra eða sinsin leiddist nú heldur mikið klukkan 13:20 23 apríl..
Það var leiðinlegt veður, þreyttur en mátti ekki fara að sofa :o og hafði ekkert að gera :/
Einnig var hann góður drengur og búinn að læra heima!
Tsss…


Gleymska!
^^^^^
Elín.. eða elinwho skrifaði kork..
Well.. hún gleymdi um hvað hún ætlaði að skrifa en skrifaði því bara kork um ferminguna sína sem var einmitt á skírdag!
Hún var í þjóðbúning í kirkjunni en kjól sem amma hennar saumaði í veislunni ^^,
Svooo mundi hún um hvað korkurinn átti að vera og lagði fram 3 spurningar..
1.Hvaða lag hlustuðuð þið síðast á?
2. Á hvaða lag eruð þið að hlusta?
3. Á hvaða lag ætliði að hlusta næst?
Klassík!


Mizzeeh Hættur!
^^^^^
okkar dáði stjórnandi sorps er hættur!
Hann er víst búinn að fá leið á þessu en kommentar kanski stöku sinnum..
Hann segist ætla að koma aftur og skipuleggja samkundur ef áhugi er fyrir því! ^^
Jæja.. vertu sæll! :) komdu sem fyrst aftur ^^
*sorparar standa í hóp, veifa kveikjurum og syngja eitthvað kveðjulag*
Vansi er einnig í fríi þar sem hann er í London svo við verðum að treysta á HerraFulkominn :)



Slæmur dagur? :/
^^^^^
já.. það má nú segja að það hafi verið slæmur dagur hjá Bryndísi 23 apríl :/
hún skrifaði allavega ansi víraðann kork og tilkynnti síðann danmerkurför sína.. :/
Góða skemmtun í Dk Supernannehh..


Aaafmæli!
^^^^^
hún Dagný eða Sky átti afmæli um daginn! :o
16 ára stúlkuhnátan ^^,
til hamingju með það!
Það var hann ZiRiuS sem tilkynnti þennan stórmerka atburð ^^


Myndir!
^^^^^
Seinasti þráður þanns 23 apríls skrifaði Vansi klukkan 21:25
Þar kom hann með link á myndir frá samkomunni! :o
Stórskemmtilegar myndir þar á ferð!
Linkur = http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=9920120&uid=4779321&members=1
Yaay! :D


“Og þaá! eru fréttir 23 apríls loksins búnar! vonandi höfðuð þið gaman af þeim” :)

*útsendingu lýkur og brosið víkur fyrir fýldari svip! Kata strunsar inní kaffistofu (eða vatnsstofu) og hendir Alla úr sætinu!*

Kata: Þín turn! ^^
Deyr fé, deyja frændur,