Það var eitt sinn er tiger13, nesi13 og supermann voru úti að labba og sáu þá Nugnar en hann var illa leikin.

Hvað gerðist? sagði nesi13
Ég var úti að labba með foxyme þegar Hell of the Sorp komu og réðust á okkur og tóku foxyme til fanga. sagði Nugnar og var greinilega ekkert glaður enda er maður yfirleitt ekkert glaður þegar fleiri manns koma og ráðast á mann.

Auðvitað gátu tiger13, nesi13 og supermann ekki látið þetta viðgangast svo þeir fóru með Nugnar á spítalann fyrir sorparana og fóru svo að heimsækja vettling.. úppps.. Ofur-vettling (en hann vildi láta kalla sig það) og fóru líka að hitta Kyru til að fá hana með sér í lið. Sem sagt þetta var Teamið (Masters of the Sorp) sem ætlar að gera Hell of the Sorp að engu!

Fundur í höfuðstöðvum Master of the Sorp.

En hvernig ætlum við að skemma fyrir þeim? spurði ég (tiger13).
Við getum auðvitað ekkert gert fyrr en við vitum hvað H.o.t.S. ætla að gera. sagði supermann en hann var greinilega leiðtoginn í M.o.t.S.
Og hvernig ætlum við að vita hvað H.o.t.S. ætla að gera? spurði vettlingur.. úpps.. Ofur-vettlingur (tekur smá tíma að venjast þessu nafni)
Ekkert vandamál. Við erum með njósnara í H.o.t.S. sagði supermann stoltur og kýldi útí loftið.

Fundur í Höfuðstöðvum H.o.t.S.

Múhahahahaha (héðan í frá verður þetta kallað *vondakalls hlátur*) hló ff4life. Það að lumbra á Nugnar var snilldar plan. Nú getur enginn stöðvað mitt EvilPlan! *vondakalls hlátur* allidude, Sedna, Lily2, kokusneid, Zweistein, supernanny og vansi… úpps… Ofur-vansi stóðu bara og horfðu á þangað til að þau föttuðu að þau ættu að hlægja líka. *vondakalls hlátur í öllum* En það vissi enginn nema einn af þeim að M.o.t.S. væri að hlusta. Hver er það? *kemur alltaf á undan to be continued* BARAM.
En Meistari? spurði Zweistein. ff4life stöðvaðist í miðjum *vondakalls hlátri* og var greinilega ekkert glaður.
Hver dirfist að trufla *vondakalls hláturinn minn*? spurði ff4life og var greinilega ekkert glaður. Allir bentu á Zweistein.
Það er eins gott að þú hafir góða ástæðu, Zweisten, til að trufla mig! öskraði ff4life yfir Zweistein.
Já Meistari. Hvernig hljómar þetta EvilPlan? Greinilega allir voru á sama máli og Zweistein. Enginn vissi EvilPlanið nema ff4life.
Nú auðvitað að ná Sorpyfirráðum! sagði ff4life og svo tók við *vondakalls hlátur*
Og hvernig ætlarðu að fara að því? spurði Zweistein sem var reynslunni ríkari og spurði ekki fyrr en hláturinn var búinn.
Já. Hvernig ætlarðu að gera það? spurðu allidude, Sedna, Lily2, kokusneid, supernanny og Ofur-vansi (jibbý, ég sagði Ofur-vansi en ekki vansi)
Svo þið meinið það. Þá fáið þið að heyra mitt EvilPlan. sagði ff4life. PlanA er að breyta foxyme í vélmenni sem tekur Mizzeeh og Dovotion til fanga. Þegar það er búið neyðum við þá (Mizzeeh og Devotion) til að gera mig að aðalstjórnanda Sorpsins! *vondakalls hlátur*
En nú hafði supernanny spurningu.
En hvernig er þá PlanB?
PlanB? PlanB? Og Finnst þér virkilega þetta vera það lélegt PlanA hjá mér að það og þurfi PlanB? ÞAÐ ER EKKERT PLANB!!!
Eftir þetta rosa öskur hjá ff4life þá þurfti supernanny að fara og þurka sér í framan.
Þannig nú vita allir PlanA svo getum við núna snúið okkur að *vondakalls hlátrinum* okkar?
Þannig núna heyrum við… úpps.. lesum við *vondakalls hlátur* í fimmta eða sjötta sinn *vondakalls hlátur*

Höfuðstöðvar M.o.t.S.

Jæja. Núna vitum við planið þannig farið að undirbúa ykkur fyrir bardagann í Höfuðstöðvum Mizzeeh og Devotion (Sorpinu)! sagði supermann.

Allt í einu kom Kyra og sagði við tiger13:
Finnst þér nesi13 ekki vera svolítið öðruvísi en venju lega?
Nei en eitthvað er að hjá honum! sagði ég (tiger13).



Og*röddin sem les alltaf auglýsingar*

Hvað gerist næst?
Ná M.o.t.S. að stöðva H.o.t.S. í að ná Sorpyfirráðum?
Hvað er að gerast hjá nesi13?
Breytist foxyme í vélmenni?

Það fáið þið að vita í næsta hluta Figt 4 the Sorp sem heitir:


Fight 4 the Sorp II - The Conquest og