*Davíð Oddsson blastar Latabæjarlagið niður Laugarveginn og hljóðið berst að Fréttastofu TSNG. Fréttamaður kemur svífandi niður úr loftinu á regnhlíf eins og Mary Poppins*
Kyra: HEEYY! Ég gerði það!
*Fréttamaður lítur í kringum sig og sleppir regnhlífinni*
Kyra: Ohhh.. Gáfað!
*Fréttamaður byrjar að hrapaaaa og hraaaapaaaa og hraaaa“BÚMM”*
Fréttamaður: I'm alright! I'm alright(þýðing: Ég er öllrétt! Ég er öllrétt!) Uhm já.. semsagt.. *vönkuð eftir fallið* velkomin öll á þennan stjórnarfund KB-banka! *Myndatökumaður skrúfar frá vatnsslöngu og sprautar á fréttamann*
Nei vá ég meina.. velkomin í þennan Fréttatíma! Í fréttum er þetta helst..

3 Greinar samþykktar og 7 myndir
/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\
MadClaw kemur með framfæri
/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\
Sérstakar myndir tröllríða öllu!
/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\
Jellybean kemur heim!
/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\
Hatur meðal kennara?
/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\
Svaðalegt vesen á sorpara
/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\
Segulmagnaður Geitabolti!
/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\
Samkundur!
/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\

3 Greinar samþykktar og 7 Myndir
Já 3 góðar greinar/sögur voru samþykktar í dag, sóðaleg saga um Sóðabrækur eftir betuyr, annar hluti af öðrum hluta af Once There Was A Very Regular Guy eftir Cho leit dagsins ljós og Sagan um Ofur-Magnús, II. Kafli eftir humaaaar *Fréttamaður dregur djúpt andann* svo voru 7 myndir samþykktar, þær komu frá TimBursala, tvær frá ThunderM00mba, ein frá meaniac, eXXoN, nesa13 og miltisbrandi.

MadClaw kemur með framfæri
Hann MadClaw okkar vildi koma því á framfæri að hann vill eigi lenda í hópspjalli þar sem að fleiri en 4 eru að klæmast saman.. Öh ég meina, tala saman.

Sérstakar myndir tröllríða öllu!
ATH! Ekkert 18+ efni kemur fram í þessari frétt, þó svo að titillinn bendi til þess..
Margir sorparar virðast hafa tekið sig til og búið til mjög svo sérstakan avatar/display-mynd. Svo sem betayr, kokusneid, Jellybean, vansi, foxyme, supermann, MadClaw, miltisbrandur og fleiri. Þeir sem hafa áhuga á þessu;
http://illustmaker.abi-station.com/index_en.shtml

Jellybean kemur heim!
Sorpari týndur í öðru landi kemur heim á klakann í dag/kvöld/nótt/whatever og mun vonandi joina opnu samkunduna okkar sem fer fram.. Öh kemur fram í annarri frétt. Held ég.. *hleypur og gerir heila frétt um Samkundur*

Hatur meðal kennara?
Það virðist vera að sumir kennarar þessa lands hafa tekið saman höndum og sameinast í að hata einstaka nemendur. Íslenskukennari Gellunnar123 hatar hana og Fréttamaður hefur frá ýmsu að segja varðandi suma náttúrufræðikennara. E Guðríður! Ef þú lest þetta þá ertu besti kennari í heimi, alltaf svo næs klædd og segir svo skemmtilega frá öllu, svo er húsið þitt geðveikt flott og dóttir þín er algjör hottí og *Fréttamaður missir sig í kennarasleikingum og taka verður hlé á fréttum*

….

Uhm.. afsakið þetta kæra áhorfsfólk. *roðnar og lagar á sér hárið* Höldum áfram með Fréttir!

Svaðalegt vesen á sorpara
honeynut hefur verið að lenda í allsvakalegu veseni núna undanfarið. Síminn hennar bilaði, hún var eitthvað að klöngrast upp brekki á hjóli og datt næstum því vegna SMS og hárið á henni er krullað vegna rigningar.

Segulmagnaður Geitabolti
HerraFullkominn dreymdi um the Magnetic Goatball aftur! Og veltir hann fyrir sér hvað þessir draumar eigi að þýða. *Fréttamaður teygir sig í Draumaráðningabók TSNG* AHA! Hér kemur þetta.. "Ef menn dreymir Magnetic Goatball þýðir það að þeir eigi að passa hvar þeir stingi Jarlin*þegar hér kemur roðnar Fréttamaður og skellir aftur bókinni* Uss uss, alltaf eitthvað rugl í þessum bókum *hlær vandræðalega*

Samkundur!
Jæja sorparar.. MÆTIÐ Á ÞESSAR SAMKUNDUR ANNARS ER MÉR AÐ MÆTA *andlit Fréttamanns afmyndast og röddin verður að hræðilegu öskri, Fréttamaður fer síðan að froðufella og augun ranghvolfast*
Uh.. já.. umm.. nema þeir sem geta ekki, þeir mega sleppa því ^^
Semsagt, opin samkunda fyrir alla, sama hvaða aldur þann 22. október í Kringlunni klukkan 15:00. Hittast hjá Bónus? Eitthvað svoleiðis.
Svo er það Samkundan sem er aðeins fyrir 13 ára og eldri. Ekki er enn búið að ákveða hvar, en það verður um klukkan 18:00 þann 29. okt.

Annað
/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\
Mizzeeh vill leiðrétta þann misskilning að hann fíli eigi hópspjöll. Það var einungis vegna lélegrar tölvu, hann fílar þau annars í botn og endilega startið eina góða orgíu með honum. Eða ég meina sko.. starta eitt gott.. spjall.
/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\
humar hefur opinberað sig, fengum m.a. að vita mailið hans sem að er el_jonzo@hotmail.com og einnig heimasíðuna hans: www.the-humar.tk
/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\
Samkvæmt tiger13 þá eru Kyy, meaniac og moonchild elstu sorpararnir. Semsagt, talið frá því að þau fæddust.. ekki eftir því hversu lengi þau hafa verið sorparar.
/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\
jandia hefur afboðað komu sína á 13áraogeldriSamkunduna vegna afmælis hjá ferskjunni. Það hlýtur að þýða að ferskjan kemur ekki heldur, eða hvað? Einhverjir fleiri sem ætla að afboða komu sína? *puppy-eyes og eitt lítið tár rennur niður kinnina*

Fleira var nú ekki í fréttum í kvöld. En ég bið ykkur vel að lifa og.. Já, vera góð við allt og alla, því þá gengur allt svo miklu betur.
Afi á Stöð 2: HEEYY! Þetta er mín setning!
Fréttamaður: Ohh.. okay þá.. hérna, taktu hana þá! *grýtir setningunni í Afa sem grípur listavel, en dettur síðan því miður niður stiga* Úbbs..
/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\/\
go on just say it.. you need me like a bad habit.