*cameran er inní þyrlu með mér og ekkert theme-lag kemur*

*ég reyni að kalla fréttirnar vegna þyrlugnísins* Góðan dag, nú verða sagðar fréttir en þær eru í öðruvísi kantinum í þetta sinn!

Sorparar á samkomunni!
><><><><
Sorpararnir sem eru ekki á samkomunni!

Jæja, eins og við eflaust flest vitum er samkoma í gangi sem hófst kl 7 í kvöld. Ég sit hér í þyrlu og er stödd fyrir ofan American style. Eins og foxyme hefur greint frá er mikið fjör þarna. Enda eins og Guðni Ágúst myndi orða það: Þar sem 2 sorparar koma saman, þar er fjör. Hún sagði meðal annars þetta: Já, þetta var dálítið vandræðalegt fyrst en við komumst í gírinn eftir smá. Madclaw er mesti hyperinn en Leifur er með sinni innri ró. MC3 stoppaði stutt vegna einvhers..! Núna erum við að búa til ógeðisdrykki og að búa til Effelturninn úr frönskum! Fólk glápir á okkur eins og við séum einhvern frík… En núna erum við á leiðinni út að gera eitthvað, heyrumst á morhun. Þakka þér fyrir þetta foxyme.

En fyrir þá sem sitja heima við tölvuna, viið sjónvarpið eða eru bara sofandi þá óska ég þeim líka til hamingju fyrir öööhhh… fyrir að vera bara memm :) Vansi gerði kork um sorparana sem komust ekki vegna einhvers, flestir vegna foreldra og vegna þess að þeir búa ekki í RVK. Ég hefði komist hefði ég ekki þurft að sitja í þyrlu og segja fréttirnar..(öllu heldur sitja FÖST í sumarbústað)..já *væl*

Ég þakka fyrir áhorfið, veriði sæl =)