Fréttir frá fréttastofu TSNG, Þann 23 Ágúst. Komiði sæl, í dag er Þriðjudagur og nú verða sagðar tíufréttir frá fréttastofu TSNG.

YFIRLIT: (Dúndur fréttastef)

***
1 grein samþykkt í dag.
***
HerraFullkominn ekki fullkominn eftir allt?
***
Sorparar lagstir í þunglyndi?
***
Nýja ástin hennar Gellan123
***
Á nú að fara að busa sorpara-nýgræðingana?
***
Dabbi1337 ekki dauður úr öllum æðum!
***
Supermann loksins hættur að spamma
***
Foringinn byrjaður í neyslu á ný
***


Kranamyndavél nálgast oooog…

Nærmynd!


Góðan daginn, Davíð Jóhannesson heiti ég aka Davíð aka Dabbi aka Dabbijó aka Dabbi1337 aka sætur og nú verða sagðar…


FRÉTTIR! (Dúndur fréttastef hættir)

“HerraFullkominn ekki fullkominn eftir allt?”
Samkvæmt HerraFullkominn sjálfum virðist fullkomnun hans vera að laka með hverjum deginum sem líður. Hann segir m.a. að nýlega hafi honum ekki tekist að flauta með munninn fullan af eplasæder. Þetta er hræðilegt og ef honum tekst það einn daginn þá má hann gjarnan senda mér skilaboð sem munu rata hingað fyrir ykkur hin.


“Sorparar lagstir í þunglyndi?”
Svo virðist sem sorparar séu lagstir í þunglyndi eftir fyrsta skóladaginn sinn, þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem korkurinn stútfyllist ekki að þráðum og svo hefur enginn póstað á söguþráðinn síðann Sunnudaginn 21. En Raiden reyndi að koma fólki í gott skap með Llama song sem tókst held ég hélvíti vel.


“Nýja ástin hennar Gellan123”
Gellan123 fékk í dag glænýja fartölvu með mörgum aukatökkum og ekki meira um það að segja en bara til hamingju!


“Á nú að fara að busa sorpara-nýgræðingana?”
Samkvæmt nýjustu hugmynd vansa á að busa nýja sorp menn. Og ef ég þekki vansa rétt þá á hann eftir að framkvæma þessa hugmynd
og það verður gaman að sjá hvernig þetta fer fram.


“Dabbi1337 ekki dauður úr öllum æðum!”
Já ég keypti mér nýtt bretti svo nú getið þið vitleysingarnir þagað! :)


“Supermann loksinns hættur að spamma?”
Svo virðist sem ungi spammerinn hann Supermann sé hættur. Og það má að ég held þakka Mizzeeh og kertaljos. Vonum samt að hann hætti ekki yfirhöfuð að skrifa.

“Foringinn byrjaður í neyslu á ný”
Já foringinn er byrjaður á hugipunkturisskástriksorp neyslu sinni en hann hafði ekki tíma fyrir okkur þar sem hann var að
lesa Harry Potter 5! En honum er fyrirgefið. WELCOME BACK.

np; Mase - Welcome back.



Já og ef þið hafið eitthvað fréttnæmt þá megið þið alveg senda mér póst =)


Fleira var það ekki í fréttum en við endum þennan fréttatíma með myndum af færeyskum andarungum í leit af fæði við reykjarvíkurtjörn fyrr í dag:




*Myndavél skiptist ekkert og ég verð geðveikt vandræðalegur og byrja eitthvað að stokka blöðin…*


Þarna kom þetta.

http://img280.imageshack.us/img280/6931/untitled9vs.png