Til lækningar leiknum Vafalaust er mörgum enn í fersku minni eftirgerð sem ég sendi inn af mínum verðmætasta .jpg-muni fyrir rúmu ári síðan.

Sökum þess hve margir hér á vefnum, og þá sérstaklega þessu áhugamáli, virðast hafa smitast af stökkbreytu leiksins, sem veldur heilaskaða og tröllslegri hegðun, hef ég af einskærri góðmennsku ákveðið að senda sjálfa frummyndina hingað inn. Ég geri mér fulla grein fyrir að við slíkt minnkar verðmæti hennar umtalsvert, jafnvel gríðarlega, en það er fórn sem ég er tilbúinn að færa fyrir samferðamenn mína hér á internetunum.

Hver sá sem lítur augum þennan fágæta .jpg-mun er umsvifalaust leystur undan oki leiksins, bæði hins gamla sem og stökkbreytta afbrigðisins. Ég vl nýta þetta tækifæri og óska ykkur öllum til hamingju með þann merka áfanga í lífi ykkar.

Munið mig ávalt, Teto.
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.