Ég skil þetta ekki lengur.. Af hverju þarf maður endilega að vera eitthvað heimskur ef maður kýs já?

Var að lesa frétt á vísir (http://visir.is/afstada-vigdisar-vekur-hord-vidbrogd-medal-netverja/article/2011110409031) sem segir frá afstöðu Vigdísar:

“Í lauslegri yfirferð fréttastofu mátti finna fjölda athugasemda á bloggsíðum, á Facebook og í athugasemdum á fréttamiðlum. Þar er Vigdís meðal annars sögð ómarktæk vegna þeirra eftirlauna sem hún nýtur sem fyrrverandi forseti, að hún hafi lagt hundrað ára kvennabaráttu í rúst með ákvörðun sinni, að henni sé sama um komandi kynslóðir og þá segist kjósandi íhuga að brenna myndir sem hann á af sér með Vigdísi.”

Hvað er í gangi með ofur harkalega viðbrögð!?

Mér finnst þetta mál bara komið út í einhverja vitleysu..