Svo þarna var ég í einhverjum ónefndum dal á röltinu þegar ég rekst bara á Flosa! Hafði aldrei séð hann áður en hann bara elti mig, hljóp fyrir framan mig, hann var bara awesome uknow. Síðan komum við að brúnni og hann bara stekkur uppá bara 1,2,3 og ég bara “Flosi!…. hvadda gera marr!?” og hann bara eitthvað “mirr” Síðan leiddi hann mig að stiganum niður hinum megin við en hann átti í einhverjum vandræðum með að komast niður svo á endanum hjálpaði ég honum. EN þá lifnaði hann sko við! Byrjaði að skjótast útum allt eins og einhver andskotinn, klifrandi í tré og shit. Síðan reyndi hann að leiða mig að einhverju húsi en ég tók það ekki fúlsandi hendi og sneri við. Eltir hann mig ekki með allskyns kjánalæti á leiðinni. Síðan erum við á brúnni aftur, labbandi yfir hana NEMA HVAÐ! Flosi, alltaf að sýna sig, smeygir sér eitthvað í gegnum rimlana og er eitthvað labbandi á brúninni. Síðan byrjar að hann að missa jafnvægið og það síðasta sem ég sé er hann dettandi oní svartið og síðan heyrðist bara “donk”. Ég hleyp aftur fyrir rimlana og þegar ég kem að honum situr hann bara þarna, dauðskelkaður og ég bara d'awww, síðan held ég á honum yfir brúnna, chillaði hjá einhverju sogdæmi og síðan eftir smástund kvaddi hann. Ég mun alltaf sakna hans. Hann var alger bangsi.



Allavega, það sem ég ætlaði að spyrja að var: Hvað var málið með hausinn á skjaldbökunni?


Og hvar eru öll hreindýrin?

Hvað væriru að gera ef þú byggir í Tókíó?


Afhverju var kveikjarinn fundinn upp á undan eldspýtunum?


Einfrumungar?
Let me in, I’ll bury the pain