Einu sinni var stelpa sem hét anita23. Hún var frekar kúl og kvlt þannig lagað séð. Hún átti lightsaber og skoraði fólk á hólm útí bæ og bar alltaf sigur úr bítum/býtum? W/e.
Hún átti líka kewl þræla sem hétu DrDoktor, Mogwaii, CoolBean, AdrianBlake, SvartiSaudurinn og CondoM - enginn þeirra var samt svartur (nema kannski CondoM, eða hann vildi meina að hann væri svartur að einu leyti and im not talking about the kfc shiiit).
Einu sinni datt hugi.is út og þá datt anita23 í þunglyndiskast og fór út að leita sér að hamingju.
En úti var ekkert nema kuldi, frost, villikettir og sígarettustubbar, svo hún endaði bakvið Nætursöluna. Mamma Tryggva var ekki þar svo hún brást í hágrát og skældi alla nóttina og næstu á eftir.
Síðan varð hún róni og fór að hjálpa gaurnum sem safnar flöskum niðrí bæ að safna flöskunum en anita23 var svo vön því að keppast með geislasverðið góða að það rann í hana keppnisskap og milli þeirra varð mikil samkeppni. Hún gekk svo langt að henda í hann gamalli Thule dós í andlitið og stela hjólinu hans og ætlaði að hjóla burt með allar flöskurnar hans, en þá keyrði Steini Pjé lögga framhjá og bustaði hana. Hann lét hana skila hjólinu, biðja manninn afsökunar og tók hana upp á stöð og skammaði hana fyrir að vera hjálmlausa. Þar skældi hún af því hún var kona, og þá kom vafasamur gaur og bað hana um að verða ein af hórunum sínum. Hún stóð upp, sló'ann í andlitið og gekk út lollandi.

…þetta var nefnilega bara allt eitt djók.