Þar sem þessi drengur er í minni eign og vörslu, hef ég ákveðið að leigja hann út;

Nafn: CoolBean

Ástæða útleigu: Kreppa sem leiðir til peningaskorts sem leiðir til skorts á rellum sem leiðir til þunglyndis sem leiðir til sjálfsvígshugsana sem leiða til tilrauna sem leiða til dauða sem leiðir til mikils kosntaðar vegna útfarar…and we can go like this forever.

Staðsetning: Allsstaðar, heldur sig þó aðallega á norðurlandinu. Hef verið að þjálfa hann í að geta teleportað sig, en það gengur hægt sökum þess að hann telur sig innikött.

Lýsing: Bangsalegur, dökkhærður og indæll drengur sem hefur þó sýnt einkenni emoheilkennisins, þ.e. hann á það til að stela frímerkjabókinni sem er í eigu Phucker og stunda það að rífa frímerkin úr, sleikja þau og líma aftur í og eyðileggja þau þar að leiðandi.
Hef gert ítrekaðar tilraunir til þess að reyna að fá hann til að hlýða en hafa þær borið lítinn árangur, sökum þess að hann er karlmaður og telur sig yfir mig hafinn, sem er svosem laukrétt.

Meðmælendur: AnDrI110 - ,,Ég elska hann."

Áhættumat útleigu samkvæmt sérfræðingi: Allur skal varinn vera á, en best er að útleigandi eigi í fórum sínum pakka af winston ef villidýrið í honum brýst út.
Ekki er ráðlagt að skilja hann eftir einan hjá börnum og best er vera alltaf með stífkrampasprautu við hendina þar sem hann á það til að verða árásagjarn.

Verðhugmynd: Samkomulag.

KOMA SVO, HVER VILL FÁ HANN Í LÁNI!? =D

Ps, ég elska þig coolbean.