Já, svona er þetta. Ég á vin sem við skulum ekki nefna á nafn, en nickið hans byrjar á N og endar á I og hann heitir Jón í alvörunni. Nafnleynd mikilvæg hér…
En hann Nonni - HAHAHAHA NEI DJÓÓK - eða jú, whatever, Nonni býr út í sveit.
OG MAÐURINN Á ENGAR KINDUR!
Hann býr út í sveit og er EKKI með búskap.
Á ekki einu sinni hund! Bara einn kött.
HVAÐ ER AÐ!?
Þú býrð ekkert út í sveit OG ÁTT ENGAR KINDUR!?
Hvað er að svona mönnum!?
Þetta er ógeðslegt; mig langar nánast að lóga honum Nonna fyrir svona BULL. Ég hef reynt að láta hann skammast sín, en ég er ekki viss um hvort það sé að takast.
Hann er greinilega ekki með neina samvisku.
Getur ekki axlað ábyrgð á eigin lífi, drenghelvítið.
Þetta er alveg hreint ÓÞOLANDI; hann hefur ekki hugmynd um hvar eða hvernig hann er staddur í lífinu, og ætlast síðan til þess að hann geti lifað í sátt og samlyndi við guð og menn út í sveit ÁÁN kinda OOOG auk þess sem hann velur sér að kalla sig NONNA - sem líkist ekki einu sinni Jóni.
Þessir Jónar, vaða upp eftir öllu með frekjuna og heimta að geta valið sér hvaða nick sem er, eins og annar vinur minn orðaði það svo vel.
FUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUU.

Also; SvartiSauðurinn, ég ætla að eiga við þig orð um helgina!
Ef ekki DrDoktor, tyggigummi og batguy lika, hehehe 8D