Ek hef tekið eftir að notendur huga gefi skít í svefn og segjast einungis vaka alla nóttina. Út af þessum málum fór ég í rannsóknarvinnu og fann þessa athyglisverðu staðreynd á internetinu að termítar vinni 24 tíma á dag og sofi ekkert. Út frá þeirri staðreynd fylgdi náttúrulega rökhugsunin að termítar vinna saman og því gætu þeir auðveldlega tekið sig saman og ákveðið að kveikja á tölvu og gætu hæglega þaðan komist yfir aðgangsorð saklauss huga og /sorp notanda og farið og bullað eitthvað á /sorp. Þannig að ef þið sjáið að einhverjir segi að þeir þurfi ekki svefn þá eru mjög miklar líkur á að um termítasamsæri hafi verið að ræða og ber að svara þeim commentum með hæstu aðgát og gæta á að heimilisfang eða nafn viðkomandi svaranda komist ekki í hendur miskunnarlausa termíta sem hæglega brjótast inn og stela og bramla aðganga inn á /sorp.