Ahh :D langt síðan að ég hef gert þráð hér inná… eða bara almennt á huga.
hef verið meira í því að fylgjast með heldur en að gera þræði og kommenta seinustu 2-3 mánuði eða svo.

Ég hef tekið eftir mörgum nýjum hér inná og mörgum áhugaverðum… allir þessir nýgræðingar sem að ég hef séð hafa verið ágætir hingað til og ég vil hrósa ykkur sem að eiga það skilið (ekki misnota þetta… annars deyr panda)

en ég skrifa þennan þráð til þess að reyna að opna ykkur sorpara, gamla sem nýja og fá að heyra aðeins um ykkur með litlum gátlista og hvað er svona helst í fréttum hjá ykkur, sjálfur skal ég byrja dúllur ;)

listinn!;

Aldur: ég verð 18 ára í ár :D
Hjúskaparstaða: er á föstu
Fyrsta nafn(amk): Árni
Kyn: piltur
Kók eða Pepsi?: Kók
Hvar á landinu?: kópavogi
Annað: Mússí mússí mú!

fréttir;

ég var að skipta um menntaskóla og er s.s. í MK núna en ekki Borgó (fyrir ykkur gömlu sem að ætluðu að taka sörprís heimsókn þessa önn)
svo bara rétt í byrjun í febrúar þá klára ég lyfjameðferð sem að ég hef verið á seinustu 4 mánuði :D

EN HVAÐ ER AÐ FRÉTTA AF YKKUR OG HVERJAR ERU SVONA HELSTU UPLÝSINGARNAR UM YKKUR?! :D

svo eru tilgangslausari fréttir af mér hér fyrir neðan.

VARÚÐ!: Textinn hér fyrir neðan er afar tilgangslaus fyrir margan manninn og inniheldur TVO! broskalla!

Ég hef legið í leti núna í 1 og hálft ár og “hreyft mig” inn á milli en samt lítið fitnað á þessum tíma, en rétt fyrir jól þá byrjuðu auka kílóin að hlaða sig á mig og ég var og er ekki sáttur :C

Þrátt fyrir leti þá hef ég samt alltaf verið mikill orkubolti og er og var alltaf mjög ánægður og alltaf í stuði… bara latur og nennti aldrei að stunda ræktina mikið og þannig

EN!!! áðan fór ég út að skokka einhvern 2,2 km og fann það að þolið mitt er orðið lélegt…

… EN ÉG GERÐI ÞETTA SAMT!!! (og er pínu stoltur^^)

Markmið mitt er 6pack fyrir sumarið, 100 Kg í bekk AMK og getað tekið 5 Km á 23 mín. eða betra (5 Km á 23 mín. er persónulega metið mitt).