Eins og allir vita, er Ársendafastan handan við hornið. og eins og allir vita líka, byrjum við hana með því að hlaupa um í svörtum ruslapokum og ýmiskonar eggvopn og veiðum ísbirnina sem lifa á landinu. Og upp á síðkastið hafa fleirri og fleirri túristar viljað koma til landsins og upplifa stemninguna við að búa allt árið um kring í snjóhúsi og stunda sjálfsþurftabúskap eins og við stundum. En nú þegar fyrsti bílinn er kominn til landsins þurfum við að gera okkur grein fyrir því að við erum ekki villimenn. ég legg til að við notum boga þetta árið í stað þessara prímitísku eggvopna sem við höfum notað upp á síðkastið. einhver með mér? við viljum ekki líta út eins og ribbaldar fyrir framan túristana.