HRÚTUR 21. mars - 19. apríl
Þú gætir þurft að annast einhvern sem þarf á hjálp þinni að halda. Kannski geta þú ráðið gátuna seinna meir.

NAUT 20. apríl - 20. maí
Nú er rétti tíminn til þess að upplifa ný ævintýri svo þú skalt bara láta það eftir þér að skvetta svolítið úr klaufunum. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar.

TVÍBURAR 21. maí - 20. júní
Haltu vöku þinni svo ekkert fari úrskeiðis fyrir sofandahátt eða kæruleysi. Láttu það ekki fara í taugarnar á þér heldur taktu því sem sjálfsögðum hlut.

KRABBI 21. júní - 22. júlí
Fyrir komandi atburði er mjög mikilvægt að vita hvað þú átt. Þú ættir að undirbúa málin vandlega því þá getur þú óttalaus ýtt þeim úr vör og stýrt til sigurs.

LJÓN 23. júlí - 22. ágúst
Þú gætir rekist á gamla kunningja og skólafélaga og það mun hugsanlega opna þér ný tækifæri. Fólki finnst þú mjög klár.

MEYJA 23. ágúst - 22. september
Þetta er frábær dagur til að vinna að frama og auknum tekjum. Hvort sem er þá ertu uppfullur af samúð gagnvart þeim sem minna mega sín.

VOG 23. september - 22. október
Ný persóna gengur inn í líf þitt. Kannski er um að ræða einhvern úr fortíðinni sem birtist þér í minningarbroti, eða einhvern nýjan sem lífgar upp á daginn.

SPORÐDREKI 23. október - 21. nóvember
Viðkvæmni er vanmetin í heimi þar sem frumskógarlögmálið gildir. Farðu því varlega í allri samningagerð.

BOGMAÐUR 22. nóvember - 21. desember
Umhverfi þitt kemur upp um alla þína galla, sérstaklega skipulagsleysið sem hrjáir þig. Sjálfsöryggi og þolinmæði skiptir miklu máli þegar þú leysir úr vandamálum.

STEINGEIT 22. desember - 19. janúar
Þú ættir að njóta lífsins með vinum þínum í dag. Suma daga, eins og til dæmis er auðveldara að sjá samhengið.

VATNSBERI 20. janúar - 18. Febrúar
Þér finnst álagið í vinnunni vera orðið fullmikið. En forðastu bara að dragast inn í atburðarás sem kemur þér ekkert við.

FISKAR 19. febrúar - 20. mars
Einhver sem stærir sig af mætti sínum, efast um hann innst inni. Hlustaðu heldur á viðhorf hans/hennar þannig að þið getið leitað leiða til að vinna saman að sameiginlegum markmiðum.