ég er komin með nóg af því að það er alltaf fólk á huga að taka dæmi um að hvað 13 ára krakkar eru ekkert nema heimskar gelgjur sem vita ekki neitt og alltaf að þykjast vera ógeðslega þroskaðar og þannig!!! það fer ótrúlega mikið í taugarnar á mér þegar hugarar eru að rífast og t.d segja hahaha þú hljómar eins og 13 ára smákrakki! hahaha…… ég veit að það eru til margar 13 ára gelgjur og vitleysingar en það eru ekki allir sem eru yngri en þú þannig. nenniði að hætta að taka dæmi um hvað 12, 13 og 14 ára og yngri eru miklir smákrakkar sem vita ekki neitt. ég er reyndar ekki 13 heldur 14 en ég veit hvernig tilfinning það er að lesa út um allt hvað fólk á þínum aldri sé heimskt.

Bætt við 3. apríl 2009 - 18:54
Afsakið stafsetninguna ég var a flýta mér til að verða ekki sein á fimleikaæfingu. :)