Ég var hjá lækni í dag og ég komst að einu mjög áhugaverðu.
Allir læknar eru vampírur! Ég er viss um það, þau tóku sko 3 svona littla dálka með blóð, ég vil ekki að eitthverir læknær séu að drekka það. Svo láta þeir mann líka borga fyrir þetta, alveg marga peninga sko, marga peninga.

Þetta er semsagt bara lítil aðvörun, ekki treysta læknum. Þeir stela blóði!

Svo gerðist eitt áhugavert í skólanum í dag, eitthver kastaði snjóbollta inn um gluggan og hann lenti framan í mig, ég er viss um að það hafi verið viljandi.
Æ þetta var reyndar ekkert áhugavert.
Æ dem núna fékk ég sms.
Æ dem, þetta var bara auglýsing, ég sem hélt að ég ætti vini.

En annars, er ekki bolludagur í dag?
Ég er búin að fá mér bollu allavegna, líka banana og smjör, enn það á brauði.
Nei, ég kann ekki stafsetningu.