HVER SÖNG ÞETTA LAG OG Í HVAÐA MYND :D:D
likunandi má ekki svara :@@


Þó enginn sé andlega hliðin

Og óvíst um gáfnaðar hollt
Ég skal tíunda sjónarmiðin
Takmark mitt, heiður og stolt

Er ég lít á lafandi tungur
Er ljóst að þið skiljið ei hót
Hver treystir á taumlausar gungur
Þegar tigið blóð stendur í mót

En nú er að duga eða drepast
Þessi dagur mun gera okkur fræg
Nú stundin er runnin
Og örlögin spunnin
„Fáum við einhvern bita?“

Það skaltu vita
Ég veit það er þvæla
Að launa ykkur þræla
Þegar loks ég sæki minn hlut
Og réttlætið sigrar í höll
Viðbúin öll

„Já, við erum viðbúin. Við erum viðbúin … Hverju?“
„Fyrir dauða konungsins!”
„Er hann veikur?“
„Nei, fífl, við munum myrða hann, og Simba líka…”
„Fín hugmynd, burt með kónga
Kónginn burt, kónginn burt, la la la la la la“
„Hálfvitar, það mun verða kóngur!”
„En þú varst að segja…“
„Ég verð kóngur,
fylgið mér og ykkur mun aldrei þyrsta eða hungra framar!”
„Jei, allt í lagi, lifi kóngurinn!
Lifi kóngurinn!, lifi kóngurinn!"

Það kætir að kóngur sé mildur,
Sá kóngur mun elskaður heitt.

Þið skuluð vita að það bíða ykkur skyldur
Þótt skipulagið verði breytt

Þið fáið umbun og æru
Meðan ég um stjórnina sé

En hafið það alveg á tæru
Án mín hvorki frægð né fé!

Verið viðbúin valdaráni
Verið viðbúin blóðugri dáð
Kænskuleg hönnun
Þolgæðis könnun
Endalaus höfnun
Liði því söfnum

Og vinnum vér krúnu
Og að því búnu
Ég ríki í mörg þúsund ár!
Já, blóðið mun lita minn völl
Viðbúin öll!

Já, blóðið mun lita völl
Viðbúin öll!
Of all the gin joints in all the towns in all the world.. She walks into mine