sko í dag ég átti ekki minn besta dag…. skal lýsa því í stuttu máli sem gerðist
vildi setja þetta inn hér því þetta gerist við alla


ég vaknaði kl 10 mín í sjö og rétt náði strætó svona um það bil hálf átta
Þegar ég kom í skólann þá vildi félagsfræðikennarinn að við færum í MORGUNLEIKFIMI en ég settist bara niður að læra og svo byrjaði tíminn og mér vantaði strokleður og ég pirraðist útaf enginn vildi lána mér en svo loksins fékk ég það
eftir prófið keypti ég mér dónuts aaand sykurskertur eplasvali

svo fóór ég í stæææærðfræði (tvöfaldur) og ég reyknaði nokkur dæmi og var að fatta að maður ætti að margfalda tölurnar samanekki nota plús og mínus í annars stigs jöfnum

svo var enska og ég fékk út úr prófinu og einkunnin var sexkommafimm og ég veit að ég hefði getað gert betur

eftir það var matarhlé og ég át þetta owsm spakettí ég kom með í skólann :D
eftir matinn var Efnafræði og kennarinn sagði okkur að stein halda kjafti en NEEEEEI var ekki ein skinka að rífa kjaft við kennarann og það endaði með því að 4 voru sendir út og eftir það fór kennarinn yfir efnið eins og ekkert hafði í skorist
fékk að minnsta kosti tvær hringingar í þeim tíma

eftir efnafræði var leikfimi og ekkert séstakt gerðist þar og eftir það var jarðfræði og við horfðum á goshveramynd og eftir það fattaði ég að ég hefði gleimt leikfimistöskunni á borðinu og ég náði í hana og svo MISSTI ÉG AF FKN STRÆTÓ og ég ákvað að vera gáfuð og taka 19 í staðinn og strætóinn kom og ég kom inn, svo datt ég af tröppunni þegar strætóinn fór af stað og sá síðan sexuna keyra frammhjá og síðan fór ég út úr 19 og ætlaði í 18 en hann var farinn svo ég neddist til þess að bíða í 10 mín í þessum FKN KULDA
loksins kom strætóóinn og ég koommst heim :D

en þetta er ekki endirinn ég kom heim og fattaði að lyklarnir voru inni væri læst úti svo ég pirraðist mikið og hringdi í bróðir minn og ætlaði að skamma hann en hann svaraði ekki eftir það hringdi ég í vinkonu mína og ég fór til hennar og var alveg að frjósa :(
við skemmtum okkur vel með því að horfa á einn þátt og Mamma Mia og éta popp

núna er ég kominn inn aftur og ég vona að svona nokkuð gerist ekki á morgun =) ÞVÍ ANNARS

Bætt við 4. febrúar 2009 - 20:00
lentuð þið í einkverju svipuðu eða verra?
at first I was like nyeh, and then i was like wweh, okei bæ