Vísir, 28. jan. 2009 16:58

Geit í gæsluvarðhaldi



Lögreglan í Nígeríu hefur handtekið geit sem grunuð er um vopnað rán. Starfsmenn öryggisfyrirtækis sögðu lögreglunni frá því að þeir hefðu séð tvo vopnaða menn reyna að stela bíl á gæslusvæði sínu.

Þegar þeir komu hlaupandi á vettvang lagði annar mannanna á flótta en hinn breytti sér í geit.

Lögreglan bíður þess nú að sérfróðir menn skeri úr um hvort þetta sé mögulegt. Á meðan er geitin í gæsluvarðhaldi.